tónlist, klassík

Philip Glass - Föstudagsröð - Sinfóníuhljómsveit Íslands
Verð
4.200 kr
Næsti viðburður
föstudagur 17. nóvember - 18:00
Salur
Norðurljós
EFNISSKRÁ
Philip Glass
Sinfónía nr. 8
HLJÓMSVEITARSTJÓRI
Ross Jamie Collins
Bandaríska
tónskáldið Philip Glass hefur haft feikilega víðtæk áhrif á samtímamenninguna
en eftir hann liggja óperur, sinfóníur, einleiks og kammerverk og rafmögnuð
verk fyrir hans eigin tónlistarhóp. Auk þess hefur hann átt í frjóu sam starfi
við listamenn úr heimi popp, rokk og heimstónlistar, rithöfunda, dansara,
leikhúsfólk og kvikmyndagerðarmenn svo eitthvað sé nefnt. Óperur Glass á borð
við Einstein on the Beach og Akhnaten njóta ævinlega vinsælda þegar þær eru
settar upp við helstu óperuhús heims, Glass hefur skrifað tónlist fyrir
Óskarsverðlaunamyndir á borð við The Hours og kvikmynd Martins Scorsese,
Kundun, en áhrifamesta verk hans í þeim miðli er þó eflaust leiðslukennd
hljóðrásin við kvikmyndina Koyaanisqatsi. Sinfóníur Glass búa yfir sama seiðmagninu,
en þær eru nú orðnar fjórtán talsins.
Á þessum tónleikum stjórnar Daníel
Bjarnason sinfóníu nr. 8, verki frá árinu 2005 sem pantað var af
Brucknerhljómsveitinni í Linz undir stjórn Dennis Russell Davies.
Hljómsveitarstjórinn hvatti tónskáldið til að „líta á hljómsveitina sem
samansafn virtúósískra einleikara á borð við þá sem einleikskonsertar eru
gjarnan skrifaðir fyrir“. En líkt og tónskáldið segir sjálft er
umfjöllunarefnið „tungumál tónlistarinnar sjálfrar“.
Viðburðahaldari
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Miðaverð er sem hér segir:
A
4.200 kr.
Dagskrá
Norðurljós
Þessi einstaki og fallegi salur á annarri hæð Hörpu hentar vel fyrir tónleika, ráðstefnur, sýningar, árshátíðir og hvers kyns mannamót.

Hápunktar í Hörpu