tónlist, klassík

Opnar æfingar Sinfóníuhljómsveitar Íslands
Verð
2.100 kr
Tímabil
5. október - 24. maí
Salur
Eldborg
Sinfóníuhljómsveitin opnar dyrnar að lokaæfingum á tónleikadegi fyrir flesta áskriftartónleika í gulri, rauðri og grænni tónleikaröð. Hægt er að kaupa aðgang að æfingunum í miðasölu Hörpu og á sinfonia.is. Lokaæfingin hefst kl. 10:00 en aðgangur er takmarkaður við ákveðin sæti í Eldborg á 1. svölum. Þetta er tilvalið tækifæri til að dýpka upplifun og skilning á tónlistinni sem flutt verður á tónleikum um kvöldið.
Tekið skal fram að æfingarnar eru ekki tónleikar, heldur vinnuæfingar og dagskrá þeirra því ekki endilega í fullu samræmi við tónleika kvöldsins.
Aðgangur er 2.100 kr.
Viðburðahaldari
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Miðaverð er sem hér segir:
A
2.100 kr.
Dagskrá
fimmtudagur 5. október - 10:00
fimmtudagur 12. október - 10:00
fimmtudagur 19. október - 10:00
fimmtudagur 26. október - 10:00
fimmtudagur 9. nóvember - 10:00
fimmtudagur 11. janúar - 10:00
fimmtudagur 18. janúar - 10:00
fimmtudagur 1. febrúar - 10:00
fimmtudagur 8. febrúar - 10:00
fimmtudagur 22. febrúar - 10:00
fimmtudagur 14. mars - 10:00
fimmtudagur 18. apríl - 10:00
föstudagur 10. maí - 10:00
Eldborg
Eldborg er stærsti salur Hörpu þar sem öll hönnun og útfærsla skapar glæsilega umgjörð. Salurinn tekur allt að 1600 manns í sæti. Í Hörpuhorni, við glerhjúpinn á annarri hæð, er unnt að vera með standandi kaffiveitingar eða móttökur tengdar Eldborg.

Hápunktar í Hörpu