tónlist, klassík, sinfóníuhljómsveit

Nielsen og Schumann - Sinfóníuhljómsveit Íslands
Verð
3.000 - 9.200 kr
Næsti viðburður
fimmtudagur 22. febrúar - 19:30
Salur
Eldborg
EFNISSKRÁ
György Ligeti Concert
Românesc
Carl Nielsen
Fiðlukonsert
Robert Schumann
Sinfónía nr. 3
HLJÓMSVEITARSTJÓRI
Leo McFall
EINLEIKARI
Vera Panitch
Carl Nielsen
hafði háleit markmið þegar hann hóf að semja sinn dramatíska Fiðlukonsert
sumarið 1911. „Þetta verður að vera góð tónlist en þó má aldrei missa sjónar á
einleikshljóðfærinu sem þarf að sýna í besta hugsanlega ljósi. Verkið þarf að
vera innihaldsríkt en þó ná vinsældum almennings, það þarf að vera glæsilegt án
þess að verða yfirborðskennt. Allar þessar þversagnir þarf að leiða til lykta í
æðri samhljómi.“ Það reyndist Nielsen ekki þrautalaust að ná þessum markmiðum
en tókst að lokum og fiðlukonsertinn reyndist bæði áhrifamikill og frumlegur í
formi.
Á þessum tónleikum hljómar þetta hrífandi verk í túlkun Veru Panitch, annars
konsertmeistara hljómsveitarinnar. Þriðja sinfónía Schumanns er sannkallað
meistaraverk, innblásið af fegurð Rínarlanda og samið á aðeins fimm vikum,
skömmu eftir að tónskáldið flutti með fjölskyldu sína til Düsseldorf. Í verkinu
takast á frjó nýsköpun og formræn fastheldni en undir öllu krauma heitar
tilfinningar. Tónleikarnir hefjast á æsilegri þjóðlagafantasíu György Ligeti
fyrir hljómsveit, Concert Românesc, þar sem fjörleg alþýðutónlist úr
uppvaxtarhéraði tónskáldsins, Transylvaníu, fær nýja vængi í útsetningu fyrir
heila sinfóníuhljómsveit.
Viðburðahaldari
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Miðaverð er sem hér segir:
A
7.800 kr.
B
6.300 kr.
C
4.800 kr.
D
3.000 kr.
X
9.200 kr.
Dagskrá
Eldborg
Eldborg er stærsti salur Hörpu þar sem öll hönnun og útfærsla skapar glæsilega umgjörð. Salurinn tekur allt að 1600 manns í sæti. Í Hörpuhorni, við glerhjúpinn á annarri hæð, er unnt að vera með standandi kaffiveitingar eða móttökur tengdar Eldborg.

Hápunktar í Hörpu