tónlist, klassík, sinfóníuhljómsveit

Myndir á sýningu - Sinfóníuhljómsveit Íslands
Verð
3.000 - 9.200 kr
Næsti viðburður
fimmtudagur 18. janúar - 19:30
Salur
Eldborg
EFNISSKRÁ
Alberto Ginastera Fjórir dansar úr Estancia
Anna Clyne Dance, sellókonsert
Modest Músorgskíj Myndir á sýningu (úts. Maurice Ravel)
HLJÓMSVEITARSTJÓRI
Emilia Hoving
EINLEIKARI
Senja Rummukainen
Efnisskrá þessara fjörmiklu tónleika stefnir saman ólíkum
listformum en þeir hefjast á fjórum dönsum úr balletti argentínska tónskáldsins
Alberto Ginastera, þar sem hinir suðuramerísku gauchokúrekar eru
aðalsöguhetjurnar. Sellókonsert Önnu Clyne, Dance, sækir á hinn bóginn í ljóð
persneska ljóðskáldsins Rumi og ber hver fimm þátta hans titil úr ljóðum hans.
„Ég man ekki hvenær ég táraðist síðast yfir samtímaverki,“ skrifaði gagnrýnandi
Gramophone um verk Clyne sem frumflutt var 2019, en það hlaut fádæma góðar
viðtökur fyrir hrífandi fagrar laglínur, fáguð litbrigð í hljómsveitarskrifum
og mikla tilfinningalega dýpt. Eftir hlé hljómar eitt frægasta verk Modests
Mússorgskíjs, Myndir á sýningu. Mússorgskíj samdi verkið upphaflega fyrir píanó
og byggði á myndum hins nýlátna vinar síns, listmálarans Viktors Hartmanns.
Verkið leiðir hlustandann á eins konar göngu um sýningu þar sem staldrað er við
áhrifamiklar myndir sem tendra ímyndunaraflið með vísunum í ævintýri, þjóðsögur
og sögufræga staði. Útsetning Maurice Ravel fyrir sinfóníuhljómsveit er
snilldarleg og bætir við enn einni vídd í þetta stórbrotna verk.
Viðburðahaldari
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Miðaverð er sem hér segir:
A
7.800 kr.
B
6.300 kr.
C
4.800 kr.
D
3.000 kr.
X
9.200 kr.
Dagskrá
Eldborg
Eldborg er stærsti salur Hörpu þar sem öll hönnun og útfærsla skapar glæsilega umgjörð. Salurinn tekur allt að 1600 manns í sæti. Í Hörpuhorni, við glerhjúpinn á annarri hæð, er unnt að vera með standandi kaffiveitingar eða móttökur tengdar Eldborg.

Hápunktar í Hörpu