tónlist, klassík, sinfóníuhljómsveit

Mozart og Bruckner - Páskatónleikar Sinfóníunnar
Verð
3.000 - 9.200 kr
Næsti viðburður
fimmtudagur 21. mars - 19:30
Salur
Eldborg
EFNISSKRÁ
Wolfgang Amadeus
Mozart Píanókonsert í dmoll K466
Anton Bruckner
Sinfónía nr. 9
HLJÓMSVEITARSTJÓRI
Eva Ollikainen
EINLEIKARI
Javier Perianes
Píanókonsert Mozarts í dmoll K466 er einn af áhrifamestu píanókonsertum tónskáldsins, djúphugul og dramatísk tón smíð sem var í sérstöku eftirlæti hjá rómantísku kynslóðinni sem á eftir kom. Spænski píanóleikarinn Javier Perianes býr yfir „einstakri samsetningu af hógværð og algerri snilld“ (Sunday Times) og hefur hlotið frábæra dóma fyrir næma og tæknilega óaðfinnanlega túlkun sína á verkum Mozarts. Níunda og síðasta sinfónía Bruckner er sömuleiðis óvenjulega persónuleg og leit tónskáldið á hana sem rökréttan endapunkt ævistarfs síns. Hann tileinkaði verkið Drottni sjálfum en trúin var tónskáldinu ætíð nálæg og hafa margir lýst hinum magn þrungnu sinfóníum hans sem íburðarmiklum dómkirkjum úr tónum. Trú hans á sjálfum sér var hins vegar einkar brothætt og eyddi hann dýrmætum árum í endurskrif og leiðréttingar fyrri verka á meðan níunda sinfónían beið. Þegar hann komst loks af stað sóttist verkið hratt og örugglega, en þverrandi heilsa kom í veg fyrir að hann gæti fullklárað fjórða og síðasta þáttinn. Eftir andlát Bruckner tóku aðrir til við að fullklára verkið og gera breytingar á fyrri þáttum þess. Hér hljómar sinfónían eins og Bruckner gekk sjálfur frá henni, í þremur heildstæðum og áhrifamiklum þáttum.
Viðburðahaldari
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Miðaverð er sem hér segir:
A
7.800 kr.
B
6.300 kr.
C
4.800 kr.
D
3.000 kr.
X
9.200 kr.
Dagskrá
Eldborg
Eldborg er stærsti salur Hörpu þar sem öll hönnun og útfærsla skapar glæsilega umgjörð. Salurinn tekur allt að 1600 manns í sæti. Í Hörpuhorni, við glerhjúpinn á annarri hæð, er unnt að vera með standandi kaffiveitingar eða móttökur tengdar Eldborg.

Hápunktar í Hörpu