tónlist, klassík, sinfóníuhljómsveit

Mahler nr. 3 - Listahátíð í Reykjavík - Sinfóníuhljómsveit Íslands
Verð
4.000 - 10.200 kr
Næsti viðburður
fimmtudagur 6. júní - 19:30
Salur
Eldborg
EFNISSKRÁ
Gustav Mahler
Sinfónía nr. 3
HLJÓMSVEITARSTJÓRI
Eva Ollikainen
EINSÖNGVARI
Christina Bock
KÓRSTJÓRAR
Stefan Sand
Groves
Sigríður Soffía
Hafliðadóttir
Margrét Pálmadóttir
KÓRAR
Stúlknakór Reykjavíkur
Auroro
Vox feminae
Þriðja sinfónía Mahlers er heill heimur út af fyrir sig, eins og tónskáldið taldi reyndar að allar sinfóníur ættu að vera. Hún er í senn óður til náttúrunnar og djúphugul, heimspekileg könnun á mannlegu hlutskipti. Sjálfur sagði Mahler einmitt að rödd náttúrunnar hljómaði í verkinu, en hann samdi það við bakka Attersee í Austurríki þar sem útsýni yfir vatnið og fjöllin í kring veitti honum stöðugan innblástur og svip myndir af veðurfari, gróðri og dýralífi ólíkra árstíða fléttuðust inn í tónsmíðarnar. Mahler hafði hugsað sér að halda lengd verksins í skefjum en þegar andinn var kominn yfir hann varð ekki aftur snúið: „Það er sem straumur sköpunarinnar hafi hrifið mig með sér,“ skrifaði tónskáldið í bréfi. „Ég á mér engrar undankomu auðið!“ Sinfónían varð sú lengsta af öllum 10 sinfóníum hans en hún er í sex þáttum og tekur um eina og hálfa klukkustund í flutningi.
Þrátt fyrir lengdina er verkið einkar aðgengilegt og ekki laust við að hlustandinn láti berast með sama straumi og Mahler forðum. Það tilfinningalega ferðalag sem sinfónían leiðir hlustandann í er líka varðað lýsandi nöfnum sem tónskáldið gaf þáttunum sex, þótt síðar hafi hann kosið að halda þeim utan við prentaðar útgáfur verksins. Þannig hefst hinn stór brotni fyrsti þáttur á því að sumarið heldur innreið sína en þeir næstu eru helgaðir lifandi verum: blómunum á enginu, dýrum skógarins og sjálfum manninum. Síðustu tveir þættir sinfóníunnar lúta að upphafnari fyrirbærum: englunum og ástinni, en lokaþátturinn er hægur og kærleiksríkur þakk lætissöngur til alls heimsins.
Þetta stórvirki Mahlers krefst óvenjustórrar sinfóníuhljóm sveitar, tveggja kóra og einsöngvara en með einsöngshlut verkið fer hin þýska Christina Bock.
Tónleikarnir eru samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík og Sinfóníuhljómsveitar Íslands og það er Eva Ollikainen, aðalhljómsveitarstjóri sveitarinnar, sem stýrir flutningnum.
Viðburðahaldari
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Miðaverð er sem hér segir:
A
8.800 kr.
B
7.300 kr.
C
5.800 kr.
D
4.000 kr.
X
10.200 kr.
Dagskrá
Eldborg
Eldborg er stærsti salur Hörpu þar sem öll hönnun og útfærsla skapar glæsilega umgjörð. Salurinn tekur allt að 1600 manns í sæti. Í Hörpuhorni, við glerhjúpinn á annarri hæð, er unnt að vera með standandi kaffiveitingar eða móttökur tengdar Eldborg.

Hápunktar í Hörpu