klassík, rokk og popp, sinfóníuhljómsveit, tónlist
KK og Sinfó
Verð
4.900 - 14.900 kr
Næsti viðburður
fimmtudagur 22. maí - 20:00
Salur
Eldborg
Kristján Kristjánsson, betur þekktur sem KK, er fyrir löngu orðinn einn af ástsælustu tónlistarmönnum þjóðarinnar. Einlægni, húmor og hlýja einkenna tónlist hans og texta en hann hefur einnig verið áberandi í hlutverki samfélagsrýnis. Það má segja að KK hafi komið eins og stormsveipur inn í íslenskt tónlistarlíf með plötunni Bein leið, sem út kom árið 1992 og innihélt m.a. lögin Vegbúann og Þjóðveg, lög sem enn eru þjóðarsálinni afar kær. Hljómplötur KK eru nú orðnar rúmlega 20 talsins; ýmist sólóplötur, með KK bandinu, en einnig í samstarfi við annað tónlistarfólk.
Á þessum tónleikum flytja KK og Sinfó mörg þekktustu laga hans í nýjum hjómsveitarútsetningum. Lögin spanna hans langa og farsæla feril og má þar nefna t.d. Álfablokkina, Grandhotel, Engla himins grétu í dag, Hafðu engar áhyggjur og I think of angels.
Ellen Kristjánsdóttir kemur einnig fram á tónleikunum og tekur lagið með KK.
Ekki missa af einstökum tónleikum með einstökum tónlistarmanni og Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Miðasala hefst föstudaginn 22. nóvember kl. 10:00.
Viðburðahaldari
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Miðaverð er sem hér segir:
A
12.900 kr.
B
9.900 kr.
C
6.900 kr.
D
5.900 kr.
X
14.900 kr.
E
4.900 kr.
Dagskrá
Eldborg
Eldborg er stærsti salur Hörpu þar sem öll hönnun og útfærsla skapar glæsilega umgjörð. Salurinn tekur allt að 1600 manns í sæti. Í Hörpuhorni, við glerhjúpinn á annarri hæð, er unnt að vera með standandi kaffiveitingar eða móttökur tengdar Eldborg.
Hápunktar í Hörpu