tónlist, klassík

Himnasælusinfónía með Barböru Hannigan
Verð
4.900 - 9.900 kr
Næsti viðburður
fimmtudagur 15. júní - 19:30
Salur
Eldborg
Hljómsveitarstjóri:
Barbara Hannigan
Einsöngvari:
Barbara Hannigan
Efnisskrá:
Franz Josep Haydn Sinfónía nr. 96 í D-dúr (Kraftaverkið)
Golfam Khayam I am not a tale to be told
Gustav Mahler Sinfónía nr. 4 í G-dúr,
Himnasælusinfónían
Kanadíska sópransöngkonan og hljómsveitarstjórinn Barbara Hannigan er væntanleg til Íslands á ný og heldur tvenna tónleika með Sinfóníuhljómsveit Íslands í Hörpu 15. júní og í Hofi á Akureyri 16. júní. Aðeins er ár síðan Barbara kom fyrst til landsins og sló í gegn með hljómsveitinni á Listahátíð í Reykjavík vorið 2022. Gagnrýnandi Fréttablaðsins sagði meðal annars um þá tónleika: „Túlkunin var draumkennd og skáldleg, það var einhver upphafin stemning yfir öllu saman,“ og „útkoman var sjaldheyrður unaður“.
Á efnisskrá tónleikanna í júní verða þrjú hrífandi tónverk þar sem ljóðræna og leikgleði Barböru Hannigan fá að njóta sín jafnt í söng og hljómsveitarstjórn. Tvö verkanna teljast til öndvegisverka tónbókmenntanna, það eru hin svonefnda Kraftaverkasinfónía Josephs Haydn nr. 96 og fjórða sinfónía Gustavs Mahler, hin svokallaða Himnasælusinfónía, þar sem Barbara fer með sópranhlutverkið auk þess að stjórna hljómsveitinni. Á undan sinfóníu Mahlers hljómar nýtt og spennandi verk íranska tónskáldsins Golfam Khayam, en hún nýtur mikillar velgengni fyrir tónsmíðar sínar. Þar fléttast þræðir úr hefðbundinni tónlist heimalands hennar saman við tilraunakennda tónlist samtímans. Leiðir þeirra Barböru Hannigan lágu saman eftir þátttöku Hannigan í samstöðutónleikum með konum í Íran og er þessi stutta og spunakennda tónhugleiðing samin með hana í huga. Sinfónía Haydns er ein af hinum snilldarlegu Lundúnasinfóníum hans þar sem kímnigáfa hans og fullkomið vald á forminu njóta sín til fulls. Himnasælusinfónía Mahlers er sömuleiðis í sérflokki meðal höfundarverka hans – klassísk í formi og aðgengileg en full af barnslegri einlægni, ást á náttúrunni og tilfinningu fyrir hinu yfirskilvitlega.
Barbara Hannigan hefur vakið feikilega aðdáun um heim allan undanfarin ár fyrir stórfenglegan söng en ekki síður fyrir hæfileika sína sem hljómsveitarstjóri. Hún hefur starfað með öllum helstu hljómsveitum heims og hefur frumflutt yfir 85 ný tónverk, meðal annars eftir György Ligeti og Hans Abrahamsen. Þá hefur hún sungið í helstu óperuhúsum heims, meðal annars hið krefjandi titilhlutverk í Lulu eftir Alban Berg. Barbara Hannigan hefur hlotið ótal verðlaun fyrir list sína, meðal annars Grammy-verðlaun fyrir plötuna Crazy Girl Crazy árið 2018 og hin virtu Léonie Sonning-verðlaun árið 2020. Þegar Rolf Schock-verðlaunin féllu henni í skaut rökstuddi dómnefndin ákvörðun sína með þeim orðum að Hannigan væri „einstakur og framsækinn flytjandi sem nálgast tónlistina sem hún flytur með öflugum og lifandi hætti“.
Viðburðahaldari
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Miðaverð er sem hér segir:
A
8.900 kr.
B
7.500 kr.
C
6.500 kr.
D
4.900 kr.
X
9.900 kr.
Dagskrá
Eldborg
Eldborg er stærsti salur Hörpu þar sem öll hönnun og útfærsla skapar glæsilega umgjörð. Salurinn tekur allt að 1600 manns í sæti. Í Hörpuhorni, við glerhjúpinn á annarri hæð, er unnt að vera með standandi kaffiveitingar eða móttökur tengdar Eldborg.

Hápunktar í Hörpu