Ekkert fannst
Alls voru 350 byggingar frá 37 Evrópulöndum tilnefndar árið 2013. Harpa var ein af fimm byggingum í úrslitalista og sigraði að lokum Mies van de Roche 2013.
Í rökstuðningi leggur formaður dómnefndar, Wiel Arets, einkum áherslu á þrennt: þá ákvörðun að ljúka við byggingu Hörpu þrátt fyrir kreppuna, einstaka tengingu byggingarinnar við höfnina og umhverfi Reykjavíkur og merkilega samvinnu við Ólaf Elíasson um glerhjúpinn utan um húsið.
Verðlaunin voru sett á stofn árið 1987 af Evrópusambandinu og Stofnun Mies van der Rohe í Barcelona. Þeim er ætlað að vekja athygli á því sem best er gert í evrópskri byggingarlist og koma allar byggingar sem lokið var við á árunum tveimur fyrir afhendinguna til greina. Í ár voru 350 byggingar frá 37 Evrópulöndum tilnefndar til verðlaunanna sem nema alls 60 þúsund evrum.
Níu manna dómnefnd, skipuð virtum sérfræðingum víða að, valdi fimm þessara verka á úrslitalista, en þau voru ráðhúsið í Gent, Belgíu, almenningsgarðurinn Superkilen í Kaupmannahöfn, heimili eldra fólks í Alcacer do Sal, Portúgal, Metropol Parasol garðurinn í Sevilla á Spáni auk Hörpu. Að undanförnu hefur þessi dómnefnd heimsótt alla þessa staði og tekið út verkin. Það var niðurstaða hennar að verðlauna Hörpu, en aðeins ein norræn bygging hefur áður hlotið þessi verðlaun, en það var óperan í Osló.
Í rökstuðningi sínum leggur formaður dómnefndar, Wiel Arets, einkum áherslu á þrennt: þá ákvörðun að ljúka við byggingu Hörpu þrátt fyrir kreppuna, einstaka tengingu byggingarinnar við höfnina og umhverfi Reykjavíkur og merkilega samvinnu við Ólaf Elíasson um glerhjúpinn utan um húsið.
Harpa er verk arkitektastofu Henning Larsen í Danmörku, í samvinnu við Batteríið á Íslandi og Studios Ólafs Elíassonar í Berlín. Verðlaunin, sem veitt eru annað hvert ár, eru einhver virtustu verðlaun á þessu sviði í heiminum.
Markaðsdeild Hörpu marketing@harpa.is 528 5010
Fréttatilkynning Mies Arch Frétt europa.eu Mies van der Rohe award á Facebook
USITT Architecture Award 2018
Best Meeting & Conference Centre in Europe 2016 -Business Destinations
Local Favorite 2016 Award – The Culture Trip
The Mies van der Rohe Award 2013
Besta ráðstefnuhús í Norður-Evrópu 2012 – MICE Award
Besta almenningsrýmið 2012 – Arkitekturmassan Awards
Verðlaun fyrir byggingarlist 2012 – Civic Trust Award
Menningarverðlaun DV 2012
Besta viðburðahúsið 2011 – Travel&Leisure tímaritið
Leiðarvísar 2011 -IIIDAwards
Nominated as the Best Cultural Building of the World 2011 – World Architecture Festival, Barcelona 2011
Eitt besta tónleikahús nýs árþúsunds 2010 – Gramophone magazine
World Architecture Award 2010