Ekkert fannst
Kolabrautin er nútímalegur veitingastaður þar sem íslenskt úrvals hráefni er matreitt samkvæmt aldalöngum matarvenjum frá Miðjarðarhafinu.
Kolabrautin státar af eintöku útsýni og tekur allt að 180 manns í sæti. Yfirmatreiðslumaður er Leifur Kolbeinsson og veitingastjóri er Guðni Hrafn Grétarsson.
Hvort sem þú vilt njóta fordrykkjar fyrir málsverðinn eða fá þér drykk áður eða eftir að þú nýtur listarinnar í Hörpu þá er bar Kolabrautarinnar fullkominn viðkomustaður. Stolt þessa glæsilega bars sem er á mörgum stöllum eru kokkteilarnir en þess má geta að bar Kolabrautarinnar var valinn besti kokkteilbarinn árið 2012 af Reykjavík Grapevine.