jazz og blús, stórsveit, tónlist

Gullöld sveiflunnar - Stórsveit Reykjavíkur
Verð
4.990 - 9.990 kr
Næsti viðburður
sunnudagur 7. janúar - 20:00
Salur
Eldborg
Stórsveit Reykjavíkur heldur sína árvissu nýárstónleika „Gullöld sveiflunnar“ í Eldborg sunnudaginn 7. janúar kl. 20. Tónleikarnir eru helgaðir swingtímabilinu, 1930-50, þegar stórsveitir réðu ríkjum í tónlistarheiminum og stjórnendur, söngvarar og einleikarar voru poppstjörnur síns tíma.
Ný og spennandi efnisskrá á hverju ári úr nótnabókum stórsveita Glenn Miller, Benny Goodman, Duke Ellington, Count Basie, Woody Herman, Tommy Dorsey og fleiri. Einungis eru fluttar upprunalegar útsetningar og ekkert er sparað til að gera þennan atburð sem glæsilegastan.
Gestasöngvarar ársins eru þau Valdimar Guðmundsson og Unnur Birna Björnsdóttir. Það er aldrei að vita nema þau dragi líka upp hljóðfæri!
Sigurður Flosason stjórnar og kynnir.
Viðburðahaldari
Stórsveit Reykjavíkur
Miðaverð er sem hér segir:
A
8.990 kr.
B
6.990 kr.
C
5.990 kr.
D
4.990 kr.
X
9.990 kr.
Dagskrá
Eldborg
Eldborg er stærsti salur Hörpu þar sem öll hönnun og útfærsla skapar glæsilega umgjörð. Salurinn tekur allt að 1600 manns í sæti. Í Hörpuhorni, við glerhjúpinn á annarri hæð, er unnt að vera með standandi kaffiveitingar eða móttökur tengdar Eldborg.

Hápunktar í Hörpu