tónlist, klassík, sinfóníuhljómsveit

Gerstein leikur Rakhmanínov - Sinfóníuhljómsveit Íslands
Verð
3.000 - 9.200 kr
Næsti viðburður
fimmtudagur 26. október - 19:30
Salur
Eldborg
EFNISSKRÁ
Jennifer Higdon
blue cathedral
Sergej
Rakhmanínov Píanókonsert nr. 3
Sergej Prokofíev
Rómeó og Júlía, svíta
HLJÓMSVEITARSTJÓRI
Stéphane Denève
EINLEIKARI
Kirill Gerstein
Þriðji píanókonsert Rakhmanínovs er einn af hátindum píanóbókmenntanna, skrifaður
af mikilli andagift og þekkingu á möguleikum hljóðfærisins. Verkið er
jafnframt einhver kröfuharðasti píanókonsert sem saminn hefur verið en eins og
frægt er orðið hafði Rakhmanínov gríðarstórar hendur og bjó yfir feikilega
góðri píanótækni. Það er því heppilegt að einleikarinn á þessum tónleikum,
Kirill Gerstein, „hristir erfiðustu tónahlaup fram úr erminni eins og ekkert
sé“, eins og gagnrýnandi Fréttablaðsins komst að orði um Gerstein þegar hann
kom fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands árið 2016. Við sama tækifæri var leikur
hans sagður „rafmagnaður og fullur af dirfsku“. Það finnast ekki síður
óheflaðar ástríður í balletttónlist Sergejs Prokofíev um elskendurna sem
Shakespeare gerði ódauðlega, Rómeó og Júlíu.
Á þessum tónleikum hljómar svíta sem
hljómsveitarstjóri kvöldsins, Stéphane Denève, hefur unnið upp úr stórvirki
Prokofíevs. Tónleikarnir hefjast á stuttu hljómsveitarverki Jennifer Higdon,
blue cathedral, þar sem sárar tilfinningar tengdar bróðurmissi fá farveg í
fáguðum hljómsveitarvefnaði.
Viðburðahaldari
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Miðaverð er sem hér segir:
A
7.800 kr.
B
6.300 kr.
C
4.800 kr.
D
3.000 kr.
X
9.200 kr.
Dagskrá
Eldborg
Eldborg er stærsti salur Hörpu þar sem öll hönnun og útfærsla skapar glæsilega umgjörð. Salurinn tekur allt að 1600 manns í sæti. Í Hörpuhorni, við glerhjúpinn á annarri hæð, er unnt að vera með standandi kaffiveitingar eða móttökur tengdar Eldborg.

Hápunktar í Hörpu