Ekkert fannst
Víkingur og Sinfóníuhljómsveit Íslands í beinu streymi í kvöld
· Verk eftir Daníel Bjarnason, Grieg, Sibelius og Mozart
· Beint streymi í kvöld frá Eldborg á sinfonia.is
Beint streymi verður frá tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands með Víkingi Heiðari Ólafssyni og Daníel Bjarnasyni í Eldborg Hörpu í kvöld 8. nóvember. Streymið er aðgengilegt á vef hljómsveitarinnar, www.sinfonia.is.
Á tónleikunum leikur Víkingur píanókonsertinn Processions eftir Daníel en þeir frumfluttu konsertinn saman með hljómsveitinni fyrir tíu árum. Víkingur er kominn í hóp fremstu einleikara á heimsvísu og hlaut á dögunum hin virtu og eftirsóttu Gramophone-verðlaun sem listamaður ársins. Tónleikarnir eru upphitun fyrir tónleikaferð hljómsveitarinnar til Þýskalands og Austurríkis síðar í mánuðinum.
Einnig leikur hljómsveitin hornkonsert nr. 3 eftir Mozart með króatíska hornsnillingnum Radovan Vlatković ásamt sívinsælum þáttum úr Pétri Gauti eftir Grieg og fimmtu sinfónía Sibeliusar undir stjórn Daníels Bjarnasonar en hann tók við stöðu aðalgestastjórnanda Sinfóníuhljómsveitar Íslands í byrjun starfsársins.
Einungis eru örfá sæti laus á tónleikana í en þeir verða einnig teknir upp í mynd og streymt beint á vef hljómsveitarinnar, www.sinfonia.is.
Hlekkur á streymið
Viðtal við félagana