Ekkert fannst
Með Upptaktinum, Tónsköpunarverðlaunum barna og ungmenna, er ungu fólki gefið tækifæri til að senda inn tónsmíð eða drög að henni og vinna markvisst úr hugmyndum sínum með fulltingi listamanna. Afrakstur þeirrar vinnu má sjá og heyra á tónleikum Upptaktsins á opnunardegi Barnamenningar þann 21. apríl 2020 í Silfurbergi í Hörpu. Þar leika atvinnuhljóðfæraleikarar verkin á meðan ungmennin sitja á meðal áheyrenda.
Skilafrestur hugmynda er til og með 21. febrúar 2020
Allar nánari upplýsingar um upptaktinn má sjá hér.