Ekkert fannst
Æfingar á hinni áhrifamiklu óperu meistara Puccinis, TOSCA, ganga vonum framar og eru söngvarar og leikarar í sýningunni að æfa kvölds og morgna í Eldborgarsal sem og í öðrum rýmum Hörpu. Leikmyndin er ægifögur og á eftir að koma gestum sýningarinnar skemmtilega á óvart, enda breytist ásýnd Eldborgar töluvert í uppfærslunni. Á sunnudag er síðan komið að sitz-probe svokallaðri þegar söngvarar sýningarinnar sitja á sviðinu og syngja yfir óperuna með hljómsveitina í gryfju. Á fimmtudagskvöldið er aðalæfing og frumsýningin gengur í garð 21.október.
Óperan Tosca er stórbrotið verk í þremur þáttum eftir meistara óperunnar Giacomo Puccini. TOSCA fjallar um ástir, afbrýði og átök í skjóli umbyltingatíma í pólitík. Tónlistin í óperunni er rómantísk og einstaklega áhrifarík og Tosca er í dag ein allra ástsælasta ópera sem samin hefur verið.
Hlutverk:
TOSCA: Claire Rutter
CAVARADOSSI: Kristján Jóhannsson
SCARPIA: Ólafur Kjartan Sigurðarson
ANGELOTTI: Ágúst Ólafsson
IL SAGRESTANO: Bergþór Pálsson
SPOLETTA: Þorsteinn Freyr Sigurðsson
SCIARRONE: Fjölnir Ólafsson
Hér er hægt að nálgast miða á TOSCA.