Ekkert fannst
Dagskrá Sígildra sunnudaga veturinn 2019 – 2020 er sérdeilis fjölbreytt og glæsileg þar sem boðið verður upp á gamlar og nýjar tónlistarperlur í flutningi frábærra flytjenda.
Á meðal tónlistarmanna sem fram koma eru Tríó Nordica og Ragnheiður Gröndal sem flytja íslenskar dægurperlur í nýjum útsetningum Þórðar Magnússonar, Cauda Collective sem frumflytur nýtt verk eftir Halldór Smárason í bland við flutning verka úr smiðjum eldri meistara, Barrokkbandið Brák og Andri Björn Róbertsson töfra fram franska veisludagskrá og Kammersveit Reykjavíkur stendur fyrir þrennum tónleikum, þar af hátíðlegum jólatónleikum sveitarinnar og tónleikum í tilefni 250 ára afmælis Beethovens 2020.
Kammermúsíkklúbburinn efnir til sex tónleika í tónleikaröð vetrarins og undir hatti tónleikaseríunnar Velkomin heim koma m.a. fram tónlistarkonurnar Sólveig Thoroddsen, Anna Sóley Ásmundsdóttir og Björk Níelsdóttir sem hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin sem Bjartasta vonin í flokki sígildrar og samtímatónlistar 2018.
Hér má sjá yfirlit yfir dagskrá Sígildra sunnudaga 2019 – 2020.
Dagskrá Sígildra sunnudaga veturinn 2019 – 2020
08. 09. 2019 Ást og hatur
15. 09. 2019 Alda tríó – Markverðar konur
29. 09. 2019 Kammermúsíkklúbburinn
06. 10. 2019 Camerarctica – Mozart aríur og Brahms
20. 10. 2019 Kammermúsíkklúbburinn
27. 10. 2019 Kammersveit Reykjavíkur
03. 11. 2019 Íslenskar dægurperlur með Ragnheiði Gröndal
10. 11. 2019 Velkomin heim – Sólveig Thoroddsen hörpuleikari
17. 11. 2019 Kammermúsíkklúbburinn
24. 11. 2019 Sellósónötur
08. 12. 2019 Jólatónleikar Kammersveitar Reykjavíkur
12. 01. 2020 Steinunn Vala og Hanna
19. 01. 2020 Kammermúsíkklúbburinn
26. 01. 2020 Vinsælir sígildir ljóðasöngvar
02. 02. 2020 Barrokkbandið Brák
09. 02. 2020 Stirni Ensemble
16. 02. 2020 Tvíleikur
16. 02. 2020 Velkomin heim – Anna Sóley Ásmundsdóttir og ensemble
23. 02. 2020 Svítur og valsar úr austri og vestri
01.03.2020 Cauda Collective: Ástarjátning
08. 03. 2020 Kammermúsíkklúbburinn
15. 03. 2020 Kammermúsíkklúbburinn
22. 03. 2020 Velkomin heim – Björk Níelsdóttir og Matthildur Anna Gísladóttir
29. 03. 2020 Kammersveit Reykjavíkur
19. 04. 2020 Bach og börnin – 130 börn slá hjartans hörpustrengi
03. 05. 2020 Velkomin heim – Þóra Kristín og Desirée Mori
10. 05. 2020 Strengjakvartettar
24. 05. 2020 Barrokkbandið Brák