Ekkert fannst
Opið er fyrir umsóknir vegna styrkja til tónleikahalds í Hörpu á tímabilinu 1. ágúst 2020 til 31. janúar 2021
Styrktarsjóður Samtaka um tónlistarhús og Ruthar Hermanns auglýsir eftir umsóknum um styrki í sjóðinn. Þessi úthlutun er ætluð til að styrkja tónlistarfólk og hópa til tónleikahalds í Hörpu á tímabilinu 1. ágúst til 31. janúar 2021.
Rafrænt umsóknareyðublað er á: www.styrktarsjodursut.is
Umsóknarfrestur er til kl 24:00 miðvikudaginn 1. júlí 2020. Tilkynnt verður um úthlutun 15. júlí.
Umsóknarferli fyrir tónlistarverkefni í Hörpu árið 2021 verður auglýst í október.