Ekkert fannst
Umferðarljós fyrir hjólandi umferð hafa verið sett upp á gatnamótum við Hörpu og tengjast þau hjólastíg meðfram Sæbrautinni og þvera Faxagötu. Jafnframt voru gerðar breytingar á stýringu akandi umferðar um gatnamót Sæbrautar/Kalkofnsvegar og Faxagötu.
Til að bæta umferðaröryggi er bílaumferð sem kemur um Sæbraut að Hörpu núna stýrt með umferðarljósunum en var áður beint á sérstaka beygjuafrein sem hleypti umferð framhjá ljósunum. Þegar bílaumferð á Sæbraut fær grænt ljós, blikkar gult viðvörunarljós samtímis og grænt ljós logar fyrir umferð hjólandi. Þannig er athygli ökumanna vakin á að þeir megi eiga von á hjólandi vegfarendum og um leið hvattir til að sýna varkárni. Fyrirkomulag má sjá á skýringarmynd hér fyrir neðan:
Þegar hjólandi umferð fær rautt ljós og grænt ljós logar fyrir bílaumferð á Sæbraut, verður stefnuörin inn Faxagötu einnig græn. Sjá á skýringarmynd hér fyrir neðan:
Á annatímum eins og fyrir tónleika í Hörpu er mögulegt að bílaröð geti myndast við ljósin austur Sæbraut. Tónleikagestir, sem í gegnum árin hafa fengið forgang framhjá ljósunum gætu fundið fyrir þessu. Þeir eru því eindregið hvattir til að vera tímanlega á ferðinni.
Hér má sjá myndband sem Reykjavíkurborg lét gera og útskýrir breytinguna:
Hjólaljós og hjólastígur við Hörpu Umferðarljós fyrir hjólandi umferð á gatnamótunum við Hörpu hafa verið virkjuð og eru þau hluti af nýjum hjólastíg meðfram Sæbrautinni. Tónleikagestir sem koma akandi Sæbrautina og taka hægri beygju í bílakjallara Hörpu ættu að mæta tímanlega á næstu tónleika, því það gæti myndast bílaröð meðan allir eru að venjast þessu nýja fyrirkomulagi. Sjá frétt á vef Reykjavíkurborgar > https://reykjavik.is/frettir/hjolaljos-og-hjolastigur-vid-horpu Posted by Reykjavíkurborg on Miðvikudagur, 28. ágúst 2019
Hjólaljós og hjólastígur við Hörpu
Umferðarljós fyrir hjólandi umferð á gatnamótunum við Hörpu hafa verið virkjuð og eru þau hluti af nýjum hjólastíg meðfram Sæbrautinni. Tónleikagestir sem koma akandi Sæbrautina og taka hægri beygju í bílakjallara Hörpu ættu að mæta tímanlega á næstu tónleika, því það gæti myndast bílaröð meðan allir eru að venjast þessu nýja fyrirkomulagi. Sjá frétt á vef Reykjavíkurborgar > https://reykjavik.is/frettir/hjolaljos-og-hjolastigur-vid-horpu
Posted by Reykjavíkurborg on Miðvikudagur, 28. ágúst 2019
Allar nánari upplýsingar veitir Reykjavíkurborg og hér fyrir neðan má finna hlekk á frétt borgarinnar:
https://reykjavik.is/frettir/hjolaljos-og-hjolastigur-vid-horpu