Ekkert fannst
Tónlistarhátíðin Myrkir músíkdagar er tilnefnd til EFFE verðlaunanna, ásamt hátíðum á borð við BBC Proms. Verðlaunahátíðin fer fram 26. september n.k. og geta menn nú kosið Myrka músíkdaga sem sína eftirlætishátíð í almennri vefkosningu:
https://www.festivalfinder.eu/awards/effes-audience-choice-2019-2020/vote?fbclid=IwAR1HMnF8n1Z2E69FK73r3P80S32jbsQY1Bx5dLrl-tMgo90KeGNcBpEU-40
Myrkir músíkdagar voru ásamt 23 öðrum evrópskum hátíðum valdir úr hópi 715 hátíða sem komust á lista Europe for festivals – festivals for Europe árið 2018. Verðlaunin eru veitt annað hvert ár hátíð sem þykir skara fram úr hvað varðar listræn gæði, auk þess að hafa mikil áhrif á menningarsamstarf í nærumhverfi sínu.
Harpa hefur hýst Myrka músíkdaga á hverju ári frá því að húsið var opnað og við hlökkum til að fá að taka á móti þessari framúrskarandi hátíð aftur í janúarlok 2020.