Ekkert fannst
Um þessar mundir er tónlistarhátíðin Myrkir músíkdagar í fullum gangi, en hátíðin í ár stendur frá 26. janúar til 2. febrúar. Myrkir músíkdagar er ein elsta tónlistarhátíð landsins, stofnuð árið 1980 af Tónskáldafélagi Íslands sem vettvangur fyrir íslensk tónskáld til að fá verk sín flutt. Í dag er áhersla hátíðarinnar að flytja og kynna samtímatónlist með áherslu á nýja, íslenska tónlist og flytjendur í bland við erlend verk og erlenda flytjendur.
Gunnar Karel Másson, tónskáld er listrænn stjórnandi Myrkra músíkdaga 2019. Gunnar Karel lærði tónsmíðar við Listaháskóla Íslands og við Konunglega tónlistarháskólann í Kaupmannahöfn. Gunnar Karel hefur rekið tónlistarhátíðina Sonic Festival í Kaupmannahöfn með góðum árangri og hann er einnig einn af listrænum stjórnendum tónlistarhópsins Jaðarbers.
Smelltu hér til að kynna þér dagskrána