Ekkert fannst
Hinn eini sanni John Cleese er á leiðinni til landsins með nýju sýningu sína sem hann mun ferðast með um alla Evrópu: Last Time to See Me Before I Die. Hann kemur fram í Eldborg, fimmtudaginn 17. maí 2018.
Cleese er leikari, grínisti, handritshöfundur, kvikmyndaframleiðandi og lifandi goðsögn. Hann er þekktur fyrir að vera meðlimur í hinum sögufræga Monty Python-grínhóp og fyrir gamanþættina Fawlty Towers, sem eru orðnir að grínklassík og voru gríðalega vinsælir hérlendis sem annars staðar. Cleese hefur leikið í fjölda þekktra bíómynda á borð við A Fish Called Wanda, Rat Race, Harry Potter og James Bond. Að auki hefur hann talað inn á teiknimyndir eins og Shrek, Planes og Trolls.
Í sýningunni mun Cleese deila sögum og minningum með áhorfendum sem hann hefur sankað að sér á 40 ára litríkum ferli sínum. Að lokum mun hann taka við spurningum úr sal og eru Íslendingar einkar heppnir að fá að berja hann augum og spyrja hann spurninga áður en hann deyr!
Miðasala hefst 7. september klukkan 10:00 á harpa.is/cleese