Ekkert fannst
Hér má sjá upptökur frá beinu streymi úr Eldborg.
Harpa, Sinfóníuhljómsveit Íslands og Íslenska óperan taka höndum saman og bjóða upp á lifandi tónlistarstreymi úr Eldborg klukkan 11 flesta morgna á meðan samkomubann varir. Hverjir tónleikar vara í um 20 – 30 mínútur og er streymt á RÚV2, Facebook síðu Hörpu, Youtube-rás Hörpu og menningarvef RÚV.
DAGSKRÁ
Sunnudagur 22. mars
Gissur Páll Gissurarson og Árni Heiðar Karlsson flytja sígræn sönglög og aríur, úr suðri og norðri. Lög og ljóð eftir Puccini, Sigvalda Kaldalóns, Tosti og fleiri.
Mánudagur 23. mars
Tangóar og tríó eftir Atla Heimi Sveinsson, F. Borne og Jósep Haydn í flutningi hljóðfæraleikara Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Áshildar Haraldsdóttur, Bryndísar Höllu Gylfadóttur og Önnu Guðnýjar Guðmundsdóttur.
Þriðjudagur 24. mars
Kristján Jóhannsson og Bjarni Frímann Bjarnason flytja ítölsk og íslensk sönglög
Miðvikudagur 25. mars
Mozart á miðvikudegi – Serenaða í c-moll eftir W. A. Mozart í flutningi blásaraoktetts úr Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Fimmtudagur 26. mars
Rússneskir og íslenskir ljóðasöngvar og í flutningi Nathalíu Druzin Halldórsdóttur og Önnu Guðnýjar Guðmundsdóttur.
Föstudagur 27. mars
Dúó Stemma skipað víóluleikaranum Herdísi Önnu Jónsdóttur og Steef van Oosterhout slagverksleikara úr Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Mánudagur 30. mars
Sigrún Eðvaldsdóttir konsertmeistari Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Anna Guðný Guðmundsdóttir píanóleikari og einn af meðlimum Sinfóníuhljómsveitar Íslands flytja heillandi prógram fyrir fiðlu og píanó.
Þriðjudagur 31. mars
Hallveig Rúnarsdóttir, sópran og Hrönn Þráinsdóttir píanóbjóða upp á heillandi dagskrá sem samanstendur af norrænum sönglögum eftirTryggva M. Baldvinsson, Hildigunni Rúnarsdóttur, Jean Sibelius og Edvard Grieg.
Miðvikudagur 1. apríl Duo Harpverk er skipað Katie Buckley, hörpuleikara og Frank Aarnink, slagverksleikara sem bæði eru í Sinfóníuhljómsveit Íslands. Ásamt dansaranum Felix Urbina Alejandre úr Íslenska dansflokknum flytja þau spennandi dagskrá sem samanstendur af tónlist eftir Oliver Kentish og Daníel Bjarnason.
Fimmtudagur 2. apríl Djassgítarleikarinn Andrés Þór Gunnlaugsson og píanóleikarinn Agnar Már Magnússon flytja seiðandi dagskrá þar sem samanfléttast frumsamdir ópusar og ástsælir og dúnmjúkir djassstandardar.
Föstudagur 3. apríl Félagar í Sinfóníuhljómsveit Íslands, þau Nimrod Ron, túba, Nicola Lolli, fiðla, Justyna Bidler, fiðla, Łucja Koczot,víóla og Steiney Sigurðardóttir, selló flytja undurfallega tónlist eftir Franz Schubert Jean Françaix og David Baker.
Mánudagur 6. apríl
Una Sveinbjarnardóttir, fiðluleikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands og Tinna Þorsteinsdóttir, píanóleikari flytja efnisskrá sem spannar margar aldir; allt frá tónlist eftir miðaldatónskáldið og galdranunnuna Hildegaard von Bingen og til okkar tíma.
Þriðjudagur 7. apríl
Aríur dagsins. Ástsælar óperuaríur í úrvalsflutningi íslenskra söngvara og Bjarna Frímanns Bjarnasonar.
Miðvikudagur 8. apríl
Þórir Jóhannsson, kontrabassaleikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands og píanóleikarinn Ingunn Hildur Hauksdóttir flétta saman spennandi tónlist eftir ungverska tónskáldið Zoltán Kodály og hinn þjóðkunna jazzbassaleikara Árna Egilsson.
Þriðjudagur 14. apríl
Aríur dagsins
Íslenskir einsöngvarar og Bjarni Frímann Bjarnason tónlistarstjóri Íslensku óperunnar flytja sígildar óperuaríur
Miðvikudagur 15. apríl
Franskir tónar Blásarakvintett úr Sinfóníuhljómsveit flytur tónlist eftir franska tónskáldið Jean Francaix.
Björg Brjánsdóttir flauta, Julia Hantschel óbó , Finn Schofield klarínett, Frank Hammarin horn og Bryndís Þórsdóttir fagott
Fimmtudagur 16.apríl
Tvíleikur. Hulda Jónsdóttir, fiðluleikari og sellistinn Ragnar Jónsson flétta saman tónlist eftir J. S. Bach, Honegger, Reinhold Glière og Þorkel Sigurbjörnsson.
Föstudagur 17. apríl
Brasskvintett úr Sinfóníuhljómsveit Íslands á sviðið að þessu sinni og leikur seiðandi tónlist eftir Malcolm Arnold, Leonard Bernstein, Magnús Eiríksson og Gabrieli.
Stefano Flaibani og Einar St. Jónsson, trompettar, Stefán Jón Bernharðsson, horn, Sigurður Sveinn Þorbergsson, básúna og Nimrod Ron, túba.
—————————————
Mánudagurinn 20. apríl
Kvintett úr SÍ flytur tónlist eftir Sergei Prokofiev
Kvintett ópus 39 eftir Sergei Prokofiev
Flytjendur: Páll Palomares, fiðla; Þórarinn Már Baldursson, víóla; Julia Hantschel, óbó; Grímur Helgason klarínett; Hávarður Tryggvason, kontrabassi
Þriðjudagur 21. apríl
Íslenskir einsöngvarar flytja sígildar óperuaríur ásamt Bjarna Frímanni Bjarnasyni, píanóleikara og tónlistarstjóra Íslensku óperunnar.
Miðvikudagurinn 22. apríl
Beethoven og blásarar úr SÍ
Julia Hantschel og Peter Tompkins, óbó
Grímur Helgason og Finn Schofield, klarínett
Bryndís Þórsdóttir og Brjánn Ingason, fagott
Stefán Jón Bernharðsson, Asbjörn Bruun og Frank Hammarin, horn
Fimmtudagur 23. apríl
Sumardagskrá með Ingibjörgu Fríðu og Sigga.
Hin fjölhæfu Ingibjörg Fríða Helgadóttir og Sigurður Ingi Einarsson flétta saman dásamlegum tónum úr öllum áttum.
Föstudagur 24. apríl
Dúó Edda – Vera og Steiney
Dúó Eddu skipa þær Vera Panitch, fiðla og Steiney Sigurðardóttir, selló sem báðar eru félagar í Sinfóníuhljómsveit Íslands
Mánudagur 27. apríl
Lolli og Halvorsen
Nicola Lolli konsertmeistari Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Mathias Halvorsen píanóleikari flytja tónlist frá ólíkum öldum fyrir fiðlu og píanó.
Þriðjudagur 28. apríl
Íslenskir einsöngvarar og Bjarni Frímann Bjarnason tónlistarstjóri Íslensku óperunnar flytja ástsælar óperuaríur og sönglög úr ýmsum áttum
Miðvikudagurinn 29. apríl
Nautið hann Ferdinand
Sigrún Eðvaldsdóttir, konsertmeistari SÍ og Bergþór Pálsson, barítonsöngvari flytja bráðskemmtilegt verk eftir Alan Ridout fyrir fiðlu og sögumann
Fimmtudagur 30. apríl
Voces Thules flytur miðaldamúsík að sínum hætti. Eggert Pálsson, Einar Jóhannesson, Eiríkur Hreinn Helgason, Eyjólfur Eyjólfsson, Sigurður Halldórsson syngja, blása í lúðra og berja á trumbur.