Ekkert fannst
Með röðinni gefst áheyrendum kostur á að hlýða á einleiks- og kammertónlist í flutningi frábærra tónlistarmanna. Lögð er áhersla á fjölbreytt úrval tónleika með söng- og hljóðfæratónlist, nýrri og gamalli. Tónleikaröðin fer fram í Norðurljósum og Kaldalóni á sunnudögum kl. 16, hefjast í ágústlok 2020 og standa yfir til maíloka 2021.
Skipulag tónleika er í höndum tónlistarfólksins sjálfs en Harpa veitir röðinni stuðning með afslætti á salarleigu, kynningu og aðstoð við markaðssetningu með það að markmiði að stækka áheyrendahóp sígildra tónleika.
Áhugasamir þátttakendur sendi póst á sigildir@harpa.is þar sem eftirfarandi upplýsingar koma fram:
Umsóknarfrestur er til og með föstudagsins 6. mars 2020.