tónlist, börn og fjölskyldan

Fjöl­skyldu­dag­skrá Hörpu: Sögu­stund með Maxímús

Verð

0 kr

Næsti viðburður

laugardagur 7. október - 11:30

Salur

Kaldalón

Í sögustund með Maxa fáum við að fylgjast með tónlistarævintýrum hinnar ástsælu músar Maxímúsar Músíkúsar. Valgerður Guðnadóttir les söguna Maxímús Músíkús kætist í kór úr hinum vinsæla bókaflokki Hallfríðar Ólafsdóttur og Þórarins Más Baldurssonar við tónlistarundirleik og myndasýningu af tjaldi.  

Aðgangur er ókeypis en bóka þarf miða hér. Opnað er fyrir bókanir fimm dögum fyrir auglýsta sögustund.  

Aðgengi
Viðburðurinn fer fram á íslensku.  
Í salnum eru stæði fyrir hjólastóla á efsta bekk. 
Nánari upplýsingar um heimsóknir í Hörpu og aðgengismál má finna hér.

Næstu sögustundir:  
7. október - Maximus Musicus odwiedza orkiestre. Aleksandra Skolozynska czyta (po polsku//á pólsku)

18. nóvember -Maximús Músíkús bjargar ballettinum. Almar Blær Sigurjónsson les.

2. desember -Maximús Músíkús fer á fjöll. Steinunn Arinbjarnardóttir les. 

Við viljum upplýsa gesti um að ljósmyndari á vegum Hörpu gæti verið viðstaddur viðburðinn. Ef foreldrar eða forráðamenn vilja ekki að myndir af börnum þeirra birtist í umfjöllun um viðburðinn á miðlum Hörpu þá biðjum við ykkur vinsamlegast um að láta starfsfólk eða ljósmyndarann vita á staðnum eða í gegnum netfangið markadsdeild@harpa.is.


Viðburðahaldari

Harpa

Miðaverð er sem hér segir:

A

0 kr.

Dagskrá

laugardagur 7. október - 11:30