tónlist, klassík, uppistand

Fílalag og Sinfó

Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða

Verð

3.000 - 7.900 kr

Næsti viðburður

fimmtudagur 16. nóvember - 20:00

Salur

Eldborg

HLJÓMSVEITARSTJÓRI
Ross Jamie Collins

FÍLALAG
Bergur Ebbi
Snorri Helgason

Hlaðvarpið Fílalag hefur undanfarin ár skipað sér sess sem einn vinsælasti tónlistarþáttur landsins.
Nú stíga þáttastjórnendurnir Bergur Ebbi og Snorri Helgason í fyrsta sinn á svið með Sinfóníuhljómsveit Íslands í Eldborg þar sem þeir leggja á djúpið og fíla tónlist sem fullskipuð sinfóníuhljómsveit flytur svo í allri sinni dýrð.
Hér hljóma klassísk tónverk sem fléttast hafa saman við dægurmenningu og samtímasögu á ýmsan hátt: klassísk verk sem orðið hafa dægurtónlistarmönnum innblástur, popplög sem eiga sér klassískt hliðarsjálf og tónlist sem hljómað hefur í vinsælum kvikmyndum eða við merkingarþrungnar aðstæður – allt annars staðar en á sinfóníutónleikum.

Bergur Ebbi á að baki langan feril sem rithöfundur, uppistandari og fyrirlesari og Snorri Helgason hefur starfað sem tónlistarmaður í hálfan annan áratug og á að baki fjölmargar sólóplötur og leikhúsverkefni. Saman hafa þeir sent út hlaðvarpið Fílalag frá árinu 2014, þættirnir eru orðnir á þriðja hundrað talsins og samanlagðar hlustanir nærri milljón. Þeir hafa stigið á svið í Borgarleikhúsinu með sýningar upp úr hlaðvarpinu, en auk þess voru sjónvarpsþættir þeirra félaga um íslensk dægurlög sýndir á RÚV síðasta vor. Tón­leikar fyrir öll þau sem fíla Sinfó.


Viðburðahaldari

Sinfóníuhljómsveit Íslands

Miðaverð er sem hér segir:

A

6.900 kr.

B

5.900 kr.

C

4.600 kr.

D

3.000 kr.

X

7.900 kr.

Eldborg

Eldborg er stærsti salur Hörpu þar sem öll hönnun og útfærsla skapar glæsilega umgjörð. Salurinn tekur allt að 1600 manns í sæti. Í Hörpuhorni, við glerhjúpinn á annarri hæð, er unnt að vera með standandi kaffiveitingar eða móttökur tengdar Eldborg.