tónlist, kór, klassík

Eric Whitacre – Sönghátíð
Verð
5.000 - 7.000 kr
Næsti viðburður
sunnudagur 1. október - 17:00
Salur
Eldborg
"How thrilled I am to finally be visiting Iceland! I have long wanted to make music in this beautiful country, and to be able to do so with so many terrific Icelandic singers is a dream come true.
I am so looking forward to making music in the Land of Ice and Fire." - Eric Whitacre
Hinn heimsþekkti Eric Whitacre, tónskáld og kórstjóri, heimsækir Ísland dagana 29. september til 1. október 2023 til að vinna með kórstjórum, kórum og kórsöngvurum.
Hann er einn vinsælasti tónlistarmaður samtímans og eru tónverk hans flutt um allan heim af fremstu kórum og hljómsveitum. Whitacre er frumkvöðull sýndarkóra (Virtual Choirs). Sýndarkórar hans hafa náð yfir 60 milljónum áhorfa um víða veröld.
Dagskrá:
Föstudaginn 29. september - Námskeið kórstjóra, skráninghttps://fik.is/namskeid-fyrir-korstjora/
Laugardaginn 30. september - Langholtskirkja
Kl. 13 - 15 Come Sing - samsöngur (Singalong) undir stjórn Erics Whitacre
Aðgangseyrir kr. 7.000.- Innifalinn er einnig miði á kórtónleika í Eldborg.
Viðfangsefni Come Sing:
A Boy and a Girl
Animal Crackers Vol. 1
Sing Gently
The Seal Lullaby
Þátttakendur komi með eigin nótur. Sjá hér slóð vegna nótnakaupa https://fik.is/notnakaup
Sunnudaginn 1. október - Eldborg - kórtónleikar - frjálst sætaval
Kl. 17:00 - Tónlist eftir Eric Whitacre og íslensk kórtónlist
Eric Whitacre stjórnar eigin verkum og stjórnendur kóranna íslensku verkunum.
Aðgangseyrir kr. 5.000.- ef ekki er keyptur miði á Come Sing á laugardag
Fram koma:
Kammerkór Norðurlands og Guðmundur Óli Gunnarsson
Kordía/Spectrum og Guðný Einarsdóttir/Ingveldur Ýr
Kór Langholtskirkju og Magnús Ragnarsson
Kvennakór Reykjavíkur og Agota Joó
RAUST og Hrafnhildur Blomsterberg
Nánar um viðburðinn: https://fik.is/eric-w
LBK, Landssamband blandaðra kóra og FÍK, Félag íslenskra kórstjóra skipuleggja þennan viðburð.
Viðburðahaldari
LBK - Landsamband blandaðra kóra
Miðaverð er sem hér segir:
A
7.000 kr.
Dagskrá
Eldborg
Eldborg er stærsti salur Hörpu þar sem öll hönnun og útfærsla skapar glæsilega umgjörð. Salurinn tekur allt að 1600 manns í sæti. Í Hörpuhorni, við glerhjúpinn á annarri hæð, er unnt að vera með standandi kaffiveitingar eða móttökur tengdar Eldborg.

Hápunktar í Hörpu