17th November 2022

Ása Ber­g­lind Hjál­marsdót­tir

hefur verið ráðin verkefnastjóri dagskrárgerðar í Hörpu.

Ása Berglind Hjálmarsdóttir hefur verið ráðin sem verkefnastjóri dagskrárgerðar í Hörpu. Hún hefur þegar tekið til starfa en um er að ræða tímabundna stöðu til eins árs.

Ása Berglind lauk meistaraprófi í menningarstjórnun með áherslu á nýsköpun og frumkvöðlastarf frá Háskólanum á Bifröst árið 2021. Hún lauk BA gráðu frá tónlistardeild Listaháskóla Íslands árið 2007 og lærði einnig listkennslu á meistarastigi í sama skóla.

Það er gríðarlegur heiður að fá tækifæri til að koma að stefnumótun og framkvæmd viðburða í tónlistarhúsi þjóðarinnar. Í Hörpu starfar öflugur hópur af fagfólki og er ég full eftirvæntingar fyrir komandi tímum sem hluti af þessum góða hópi. Harpa er tónlistarhús á heimsmælikvarða og magnað að sjá hvað hefur áorkast á þessum ellefu árum síðan húsið opnaði. Stöðug þróun er í starfi Hörpu sem endurspeglast meðal annars í frekari áherslum í dagskrárgerð, til dæmis í barnamenningu“, er haft eftir Ásu Berglindi í fréttatilkynningu.

„Ráðning verkefnastjóra dagskrárgerðar er mikilvægur liður í innleiðingu á dagskrárstefnu Hörpu sem styður við menningarlegt og samfélagslegt hlutverk hússins. Ása Berglind býr yfir víðtækri reynslu úr menningar- og tónlistarlífinu á Íslandi. Markmið okkar er að auka fjölbreytni í viðburðahaldi í Hörpu með áherslu á hágæða alþjóðlega tónlistarviðburði, frumsköpun og samstarf við fjölbreyttan hóp stofnana, hátíða og einstaklinga“, segir Svanhildur Konráðsdóttir forstjóri Hörpu.

Nýtt dagskrárráð Hörpu

Stjórn Hörpu hefur jafnframt skipað dagskrárráð til tveggja ára í kjölfar tilnefninga frá fagfélögum tónlistariðnaðarins. Ráðið skipa Ásmundur Jónsson, Elísabet Indra Ragnarsdóttir, Guðni Tómasson og Sóley Stefánsdóttir. Hlutverk ráðsins er að styðja við mikilvæga innleiðingu og framkvæmd nýrrar dagskrárstefnu Hörpu þannig að húsið uppfylli sem best menningarlegt hlutverk sitt miðað við þann stakk sem því er sniðinn.

Frét­tir