tónlist, klassík, sinfóníuhljómsveit, börn og fjölskyldan

Eldfuglinn - Litli tónsprotinn - Sinfóníuhljómsveit Íslands
Verð
2.900 - 3.500 kr
Næsti viðburður
laugardagur 4. maí - 14:00
Salur
Eldborg
EFNISSKRÁ
Ígor Stravinskíj Úr Eldfuglinum
HLJÓMSVEITARSTJÓRI
Ross Jamie Collins
SÖGUMAÐUR
Halldóra Geirharðsdóttir
MYNDIR
Ari Hlynur Guðmundsson Yates
Í heillandi ævintýrinu um Eldfuglinn segir frá Ívani prins, sem er hugrakkur með eindæmum, og risastórum fugli sem logar í alls konar rauðum og gulum litum rétt eins og sólin sjálf hafi tekið sér bólfestu í fjöðrum hans. Þetta er Eldfuglinn, eitt litríkasta hljómsveitarævintýri sem sögur fara af. Á þessum kraftmiklu tónleikum segir Halldóra Geirharðsdóttir tónleikagestum frá Eldfuglinum sem birtist í öllu sínu veldi, leyndarmálum skógarins, fjöregginu og gulleplunum. Myndum teiknarans Ara Yates, sem sýna Eldfuglinn dansa og svífa á milli greina töfratrjánna, verður varpað upp meðan á flutningi stendur.
Skapandi grímugerð stendur fuglavinum á öllum aldri til boða fyrir tónleikana í Hörpuhorni.
Viðburðahaldari
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Miðaverð er sem hér segir:
A
3.500 kr.
B
2.900 kr.
C
2.900 kr.
D
2.900 kr.
X
3.500 kr.
Dagskrá
Eldborg
Eldborg er stærsti salur Hörpu þar sem öll hönnun og útfærsla skapar glæsilega umgjörð. Salurinn tekur allt að 1600 manns í sæti. Í Hörpuhorni, við glerhjúpinn á annarri hæð, er unnt að vera með standandi kaffiveitingar eða móttökur tengdar Eldborg.

Hápunktar í Hörpu