Ekkert fannst
Viðburðurinn var upphaflega á dagskrá 27. og 29. maí 2020 en var frestað vegna samkomubanns. Miðahafar sem áttu miða á viðburðinn eiga sjálfkrafa miða í sömu sætum á nýrri dagsetningu.
Niflungahringur Richards Wagner er án nokkurs vafa ein metnaðarfyllsta ópera sem fyrirfinnst í tónlistarsögunni. Fjórar óperur mynda verkið og við smíði sögunnar sótti Wagner ekki aðeins efni í hið þýska Niflungaljóð, heldur einnig Eddukvæði, Snorra-Eddu og Völsunga sögu sem hann átti í fórum sínum í þýskri þýðingu. Hann vann að verkinu í um aldarfjórðung og hér fékk gáfa hans bæði sem tónskáld og textahöfundur að njóta sín til fulls.
Efnisþráður Valkyrjunnar er að miklu leyti sóttur í Völsunga sögu. Fárviðri geisar og Siegmund leitar skjóls í húsi Sieglinde og manns hennar, Hundings. Þau Sieglinde fella hugi saman og valkyrjan Brynhildur, dóttir Óðins, óhlýðnast föður sínum með því að liðsinna Sigmundi þar sem hann heyr einvígi við Hunding. Óðinn refsar henni með því að svipta hana guðdómleikanum, breytir henni í mennska konu sem skal liggja sofandi á bjarginu umvafin vafurlogum og ekki vakna fyrr en mikil hetja fær sigrast á logunum og vakið hana með kossi.
Þessi magnaða ópera er eitt af helstu meistaraverkum tónlistar á 19. öld og Valkyrjureiðin fræga er flestum kunn. Nú hljómar Valkyrjan í fyrsta sinn í heild á Íslandi og þetta er í fyrsta sinn síðan árið 2002 sem ópera Wagners er sýnd hér í fullri lengd.
Hljómsveitinni stjórnar Eva Ollikainen, aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands, en hún hefur meðal annars vakið mikla hrifningu sem óperustjóri við Konunglegu óperuna í Kaupmannahöfn og Semperoper í Dresden.
Valkyrjan er samstarfsverkefni Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Íslensku óperunnar og Listahátíðar í Reykjavík í samvinnu við Opéra National de Bordeaux. Flutningur verksins tekur fimm klukkustundir og eru tvö hlé innifalin (45 og 30 mínútur).
EFNISSKRÁ Richard Wagner Valkyrjan (Die Walküre)
HLJÓMSVEITARSTJÓRI Eva Ollikainen
LEIKSTJÓRN Julia Burbach og Tal Rosner
VÍDEÓHÖNNUN OG ÚTLIT Tal Rosner
HLUTVERK Iréne Theorin Brünnhilde Christopher Ventris Siegmund Jamie Barton Fricka Claire Rutter Sieglinde NN Wotan Kristinn Sigmundsson Hunding Lilja Guðmundsdóttir Helmwige Sigrún Pálmadóttir Gerhilde Margrét Hrafnsdóttir Ortlinde Sigríður Ósk Kristjánsdóttir Waltraute Agnes Thorsteins Siegrune Guja Sandholt Roβweiβe Hildigunnur Einarsdóttir Grimgerde Svanhildur Rósa Pálmadóttir Schwertleite