Ekkert fannst
Í ljósi áframhaldandi samkomutakmarkana hefur hljómsveitin Valdimar ákveðið að fresta afmælistónleikunum sem áttu upprunalega að fara fram í Eldborg 27.mars.
Ný dagsetning er föstudagurinn 27.ágúst 2021 og gildir miðinn áfram.
Miðahafar fá frekari upplýsingar í tölvupósti. Athugið að pósturinn gæti hafa lent í ruslhólfi.
———————————————————————————–
Hljómsveitin Valdimar fagnar 10 ára afmæli árið 2020 og hefur í tilefni þess ákveðið að blása til stórtónleika í Eldborgarsal Hörpu.
Frá útgáfu fyrstu plötu þeirra árið 2010 hefur mikið vatn runnið til sjávar og plöturnar orðnar fjórar. Tónleikagestum gefst færi á að heyra vel valin lög af öllum plötum sveitarinnar og sögurnar á bak við þau, en mörg hver heyrast sjaldnast á tónleikum.
Ljóst er að Valdimar hefur aldrei verið verið glæsilegri en akkurat á 10 ára afmælinu.
Umsjón: Klapp