Ekkert fannst
EFNISSKRÁ Efnisskrá kynnt síðar
HLJÓMSVEITARSTJÓRI Anna-Maria Helsing
EINLEIKARAR Sigurvegarar úr einleikarakeppni Listaháskóla Íslands og Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
Framtíð tónlistarlífs áÍslandi hvílir á herðum þeirra ungu hljóðfæraleikara, söngvara og tónskálda sem um þessar mundir taka sín fyrstu skref á stóra sviðinu. Það er sérstakt tilhlökkunarefni þegar framúrskarandi ungmenni stíga fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands og njóta árangurs þrotlausrar vinnu. Í salnum sitja fjölskylda og vinir sem hafa fylgst með tónlistarnáminu um margra ára skeið og fagnaðarlætin í Eldborg eru aldrei einlægari en á þessum skemmtilegu og spennandi tónleikum.
Einleikarar á tónleikunum eru valdir í samkeppni sem fram fer í samstarfi við Listaháskóla Íslands í nóvember 2020. Efnisskrá verður tilkynnt á heimasíðu Sinfóníuhljómsveitarinnar um leið og úrslit liggja fyrir.
Námsmenn yngri en 25 ára og tónlistarnemar geta keypt miða á 1.800 kr. gegn framvísun Skólakorts Sinfóníunnar í miðasölu Hörpu.
Skólakort Sinfóníunnar