Ekkert fannst
Þessi viðburður er liðinn
Svítur og valsar úr austri og vestri
Tríó Sírajón er skipað Einari Jóhannessyni á klarinett, Laufeyju Sigurðardóttur á fiðlu og Önnu Áslaugu Ragnarsdóttur á píanó.Tríóið hefur um árabil kannað og æft verk sem skrifuð hafa verið fyrir þessa fremur óvenjulegu hljóðfæraskipan.
Francis Poulenc L’Invitation au chateau (1948)
Atli Heimir Sveinsson Erinnerungen (2005)
Aram Khachaturian Tríó fyrir fiðlu, klarinett og píanó (1932)
Alexander Arutiunian Tríó fyrir fiðlu, klarinett og píanó
Dmitri Shostakovich Smálög fyrir fiðlu, klarinett og píanó
Páll Pampichler Pálsson Notturno III (1999)
Fyrir þessa dagskrá hafa þremenningarnir í Tríó Sírajón valið litrík verk sem mynda sterkar andstæður. Það er ekki annar samsvarandi hópur sem starfar að staðaldri hérlendis og því heyrast þessi verk ekki oft og sum hafa ekki verið flutt hér áður. Landfræðilega mynda verkin nokkurs konar þríhyrning: Ísland – Rússland – Frakkland.
Kostuleg leikhústónlist Poulencs er frumflutt hérlendis, og sama má segja um verk Atla Heimis, Erinnerungen – Minningar. Það er samið í minningu Ragnars Björnssonar kórstjóra, organista og tónskálds og þarf að heyrast.
Rússneski skólinn setur sterkan svip á efnisskrána með verkum eftir armensku tónskáldin Kachaturian (sem hingað kom og vann um skeið með nýstofnaðri Sinfóníuhljómsveit Íslands árið 1951 og lyfti Grettistaki) og Arutiunian en þeir hlutu sína skólun í Moskvu. Þar hittu þeir snillinginn frá St. Pétursborg, Shostakovich, sem sýnir hér á sér glettna hlið í smálögunum þremur.
Næturljóð Páls Pampichlers sendir okkur – og við honum – ljúfa og angurværa sólseturskveðju en hann býr nú í hárri elli í Austurríki og kveðjan minnir okkur á brautryðendastarf hans og annarra samlanda hans og framlag þeirra til íslensks tónlistarlífs í áratugi sem ekki má gleymast.
Tónleikarnir fara fram innan tónleikaraðarinnar Sígildir sunnudagar í Hörpu 2019 – 2020.
08. 09. 2019 Ást og hatur
15. 09. 2019 Alda tríó – Markverðar konur
29. 09. 2019 Kammermúsíkklúbburinn – Trio Nordica, Helga Þóra og Þórunn Ósk
06. 10. 2019 Camerarctica – Mozart aríur og Brahms
20. 10. 2019 Kammermúsíkklúbburinn – Einar, Þórunn Ósk og Anna Guðný
27. 10. 2019 Kammersveit Reykjavíkur – Þrír Frakkar og Schumann
03. 11. 2019 Íslenskar dægurperlur með Ragnheiði Gröndal
10. 11. 2019 Velkomin heim – Sólveig Thoroddsen hörpuleikari
17. 11. 2019 Kammermúsíkklúbburinn – Camerarctica
24. 11. 2019 Sellósónötur – Geirþrúður Anna og Jane Ade
08. 12. 2019 Jólatónleikar Kammersveitar Reykjavíkur
19. 01. 2020 Kammermúsíkklúbburinn – Páll Palomares, Ólöf Sigursveinsdóttir, Bjarni Frímann
26. 01. 2020 Vinsælir sígildir ljóðasöngvar – Kristín R. Sigurðardóttir og Arnhildur Valgarðsdóttir
02. 02. 2020 Barrokkbandið Brák
09. 02. 2020 Stirni Ensemble
16. 02. 2020 Tvíleikur – Hulda Jónsdóttir og Guðrún Dalía Salómonsdóttir
16. 02. 2020 Velkomin heim – Anna Sóley Ásmundsdóttir og ensemble
23. 02. 2020 Svítur og valsar úr austri og vestri
01.03.2020 Cauda Collective: Ástarjátning
08. 03. 2020 Kammermúsíkklúbburinn – Strokkvartettinn Siggi
15. 03. 2020 Kammermúsíkklúbburinn – Weinberg & Shostakovich
22. 03. 2020 Velkomin heim – Björk Níelsdóttir og Matthildur Anna Gísladóttir
29. 03. 2020 Kammersveit Reykjavíkur – Beethoven í 250 ár
13.04.2020 Tríóið Minua á Björtuloftum
19. 04. 2020 Bach og börnin – 100 börn slá hjartans hörpustrengi
03. 05. 2020 Velkomin heim – Þóra Kristín og Desirée Mori
10. 05. 2020 Strengjakvartettar – Ravel, Britten og Beethoven
24. 05. 2020 Barrokkbandið Brák – Franskar aríur og hirðtónlist