Ekkert fannst
Ráðstefnan hefur verið færð frá 1. febrúar 2021 fram til 24. október 2021. Allir miðahafar fá sendan tölvupóst með frekari upplýsingum, athugið að pósturinn gæti hafa lent í ruslhólfinu þínu.
SVEFN er 3ja tíma ráðstefna þar sem farið verður ítarlega yfir mikilvægi svefns fyrir einstaklinginn, fyrirtæki og samfélagið í heild.
Matthew Walker er prófessor við Berkeley háskóla og sérfræðingur í svefni, sálfræði og taugalífeðlisfræði. Hann er virtur vísindamaður á þessu sviði og hefur birt fjölmargar ritrýndar vísindagreinar og er höfundur bókarinnar Why we sleep sem hefur farið sigurför um heiminn sl. ár og opnað augu almennings fyrir mikilvægi svefns fyrir heilsu, vellíðan og árangur.
Dr. Erla Björnsdóttir er stofnandi og framkvæmdastjóri Betri svefns. Erla er klínískur sálfræðingur og doktor í líf- og læknavísindum og sérfræðingur í svefnrannsóknum. Erla hefur birt fjölda greina í erlendum ritrýndum tímaritum og skrifað mikið um svefn á innlendum vettvangi og gaf út bókin Svefn með Forlaginu árið 2017.
Dagskrá: Alma Möller landlæknir opnar ráðstefnuna
13.00 – 13:10 Hvernig sofa Íslendingar? 13:10 – 14:00 Hvers vegna sofum við? Dr. Matthew Walker 14:00 – 14:30 Hlé 14:30 – 14:50 Er syfja lúmskur skaðvaldur? Dr. Erna Sif Arnardóttir 15:50 – 15:10 Hvernig getum við brugðist við svefnvanda barna og ungmenna? Dr. Erlingur Sigurður Jóhannsson 15:10 – 15:50 Konur og svefn. Dr. Erla Björnsdóttir 15:50 – 16:00 Samantekt
Hægt er að nýta réttindi til niðurgreiðslu hjá stéttafélögum fyrir ráðstefnuna.
Umsjón: Ysland ehf