Ekkert fannst
Þessi viðburður er liðinn
Í sögustund með Maxa fáum við að fylgjast með tónlistarævintýrum hinnar ástsælu músar Maxímúsar Músíkúsar. Vala Guðnadóttir, Pétur Oddbergur Heimisson og Almar Blær Sigurjónsson skiptast á að miðla sögum úr hinum vinsæla bókaflokki Hallfríðar Ólafsdóttur og Þórarins Más Baldurssonar við tónlistarundirleik og myndasýningu af tjaldi.
Ókeypis er á sögustundirnar en skráning og afhending miða fer fram í gegnum miðasölu Hörpu í síma 528-5050.
Maxímús Músíkús verður steinhissa þegar tvær ókunnugar mýs spretta upp úr tösku erlends hljómsveitarstjóra. Viva og Moto eru spennt að sjá Ísland og Maxi er fljótur að grípa tækifærið þegar hann heyrir af fólki á leið í ferðalag. Saman eiga mýsnar ævintýralega daga á fjöllum.
Þegar berin fara að vaxa á trjánum saknar Maxímús Músíkús heimahaganna. Mikið þætti honum gaman að komast aftur upp í sveit í almennilegan berjamó. Þegar Maxi sér hóp af syngjandi börnum í tónlistarhúsinu og heyrir að þau séu á leið út úr bænum skellir hann sér með.
ásamt einleikurum og Hljómsveit Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og Garðabæjar.
Maxímús trítlar í tónlistarskólann og kynnist þar börnum sem leika á alls kyns hljóðfæri. Þar eru krakkarnir að æfa sig, afar spennt og kát, því að þau eiga að fá að koma fram með stórri sinfóníuhljómsveit.
Þegar Maxímús Músíkús kemur heim eftir hressandi morgungöngu eru komnir skemmtilegir gestir í tónlistarhúsið: stórir hópar af börnum sem dansa svo vel að Maxi verður forvitinn. Hvar ætli þau hafi lært svona vel að dansa?
Maxímús Músíkús heimsækir hljómsveitina er fjörug saga um litla mús sem villist inn í tónlistarhús. Þar er heil sinfóníuhljómsveit að hefja æfingu og músin Maxi þvælist fyrir fótum hljóðfæraleikaranna góða stund á meðan þeir stilla hljóðfærin sín og gera sig klára. Um leið lærir hann hvað hljóðfærin heita og hvers konar hljóð þau gefa frá sér.
Sögumenn eru Pétur Oddbergur Heimisson og Vala Guðnadóttir
Hallfríður Ólafsdóttir flautuleikari er höfundur tónlistarævintýranna um Maxímús Músíkús og Þórarinn Már Baldursson víóluleikari myndskreytir sögurnar. Hallfríður og Þórarinn eru bæði hljóðfæraleikarar í Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Ævintýrið um Maxa hefur verið á dagskrá Sinfóníuhljómsveitar Íslands frá árinu 2008. Verkefnið hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar og verðlaun og hafa bækurnir verið þýddar á fjölda tungumála og eru þekktar af börnum víða um heim. Verndari verkefnisins er Vladimir Ashkenazy, aðalheiðursstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands.