Ekkert fannst
Þessi viðburður er liðinn
Jón Þorsteinn Reynisson, harmonikka Joaquin Páll Palomares, fiðla Ásgeir Ásgeirsson, gítar Jón Bjarnason, píanó Alexandra Kjeld, bassi
Eins og nafn hljómsveitarinnar gefur til kynna leikur hún tónlist argentínska harmonikkusnillingsins Astor Piazzolla. Tónlist Piazzolla, sem jafnan er nefnd hinn nýi tango (nuevo tango), er afar áhugaverð samsuða af tangó, djass og klassískri tónlist – sem greinilega má heyra í verkum hans. Meðal verka á tónleikunum má nefna Adios Nonino sem Piazzolla samdi í minningu föður síns og hinn sívinsæla Libertango sem flestir ættu að kannast við. Að auki má nefna Árstíðirnar í Buenos Aires – verk í fjórum köflum sem túlkar árstíðirnar í argentínsku höfðuborginni.
2. október – Andrés Þór kvartett leikur Paradox
9. október – Hot Eskimos / Afmælisbörn
16. október – Roy Hargrove Tribute
23. október – Stína Ágústsdóttir og Henrik Linder tríó
25. október – Piazzolla kvintett
30. október – Agnar Már Magnússon tríó – Ísaspöng af andans hyl
6. nóvember – Kvintett Sigurðar Flosasonar og Hans Olding
8. nóvember – Bjarni Sveinbjörnsson og hljómsveit
13. nóvember – Kvintett Rebekku Blöndal
22. nóvember – Thoroddsen / Weiss / van Endert Project
27. nóvember – Eiríkur Orri / Daníel Friðrik / Matthías Hemstock
4. desember – Afro/Cuban kvartett Einars Scheving
11. desember – Kvartett Tómasar R
13. desember – Una Stef & The SP74 í jólastuði