Ekkert fannst
Þessi viðburður er liðinn
Kvartett Sigurðar Flosasonar og þýska píanóleikarans og tónskáldsins Mariu Baptist kemur fram á tónleikum Múlans og leikur tónlist eftir þau bæði. Maria og Sigurður hafa komið fram á all nokkrum tónleikum í Þýskalandi og hérlendis bæði sem dúó og með kvartett.
Sigurður Flosason, saxófónn Maria Baptist, píanó Þorgrímur Jónsson, bassi Einar Scheving, trommur
Miðaverð á tónleikana er 3000 krónur.
Tónleikadagskrá Múlans sem er að öllu jöfnu bæði metnaðarfull og fjölbreytt er gott dæmi um þá miklu grósku sem einkennir íslenskt jazzlíf þar sem allir straumar og stefnur eiga heima. Áheyrendur geta hlustað á gæðajazz á góðu verði með frábæru útsýni yfir höfnina. Múlinn er samstarfsverkefni Félags íslenskra hljómlistarmanna (FÍH) og Jazzvakningar. Klúbburinn heitir í höfuðið á Jóni Múla Árnasyni sem jafnframt var heiðursfélagi og verndari Múlans. Stofnár Múlans var haustið 1997 en fyrstu tónleikarnir fóru fram í ársbyrjun 1998. Múlinn er styrktur af Reykjavíkurborg og Tónlistarsjóðnum og er í samstarfi við Heimstónlistarklúbbinn og Hörpu.
Skipuleggjendur Múlans eru þeir Ólafur Jónsson og Haukur Gröndal.
5. febrúar – Útgáfutónleikar Kvartetts Einars Scheving
12. febrúar – Arctic Swing Quintet ásamt Adrian Cunningham
19. febrúar – Kvartett Mariu Babtist og Sigurðar Flosasonar
26. febrúar – The Roaring Twenties
28. febrúar – Kvartett Unnar Birnu og Bjössa Thor
4. mars – Útgáfutónleikar HóBiT
6. mars – Tríó Kristjönu Stefáns
13. mars – Tónn úr tómi: Útgáfutónleikar Leifs Gunnarssonar
18. mars – ASA tríó ásamt Jóel Pálssyni
25. mars – Tríó Þorgríms Jónssonar ásamt gestum
1.apríl – Til heiðurs Wes Montgomery
8. apríl – Kvintett Inga Bjarna Skúlasonar
15. apríl – Hljómsveitin Bara gaman
17. apríl – Rebekka Blöndal & Marína Ósk
24. apríl – Bölvað braz