Ekkert fannst
Þessi viðburður er liðinn
Spennandi tónleikar með þeim Helen Whitaker, flautuleikara, Matthildi Önnu Gísladóttur, píanóleikara og Guðnýju Jónasdóttur, sellóleikara.
Á efnisskrá er tónlist eftir fjögur tónskáld, þær Judith Weir, Kaiju Saariaho, Ingibjörgu Ýr Skarphéðinsdóttur og Karólínu Eiríksdóttur.
Efnisskrá: Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir (f. 1990) Iða (2015) fyrir einleiksflautu
Karólína Eiríksdóttir (f. 1951) Þættir úr verkinu Stjörnumuldur (2007) fyrir flautu og píanó
Kaija Saariaho (f.1952) Couleurs du Vent (1998) fyrir altflautu
Judith Weir (f.1954) Several Concertos (1980)fyrir flautu, selló og píanó
Finnskar konur voru þær fyrstu í heiminum til að öðlast kosningarétt. Ekki löngu seinna fylgdu stöllur þeirra á Íslandi og Bretlandi í fótspor þeirra. Ekki voru allar konur þó með sömu réttindi, en að lokum, fyrir um það bil 100 árum, fengu allar konur í þessum löndum rödd.
Þrátt fyrir þetta mikla afrek er ennþá að finna of lágt hlutfall kvenna á mörgum vettvöngum þjóðlífsins, tónlist er þar á meðal. Með þetta í huga er hér kynnt efnisskrá af verkum eftir konur frá Bretlandi, Íslandi og Finnlandi.
Markmið verkefnisins er að undirstrika rödd kvenna í hinum sígilda tónlistargeira, og sýna fram á fjölbreytt litbrigði þeirra tónskálda sem hér verða flutt. Efnisskráin leggur megináherslu á flautuna, en þau hljóðfæri sem munu koma fyrir eru flauta, altflauta, pikkólóflauta, knéfiðla og píanó.
Helen Whitaker is margverðlaunaður flautuleikari með fjölbreyttan feril. Hún stundaði nám við Trinity Laban Conservatoire of Music and Dance í London, og deilir tíma sínum á milli þess að flytja lifandi tónlist og vinna í hljóðverum, en hún hefur komið við sögu á mörgum hljómplötum í gegnum tíðina. M.a. hefur hún unnið með hljómsveitum og tónlistarmönnum eins og The Leisure Society, Ray Davies, Laura Marling og 5 Billion in Diamonds (Butch Vig), ásamt því að flytja nútímatónlist með hópum eins og The Colin Currie Group og Lontano. Helen er einnig meðframkvæmdastjóri og fyrsti flautuleikari ALDAorchestra sem hún stofnaði árið 2016 ásamt Helga Rafni Ingvarssyni, tónskáldi og stjórnanda.
Matthildur Anna Gísladóttir píanóleikari lauk bachelornámi í einleik frá Listaháskóla Íslands árið 2007. Næst lá leiðin til London þar sem hún lauk meistaranámi í meðleik við Royal Academy of Music. Árið 2014 útskrifaðist hún frá Alexander Gibson Opera School í Royal Conservatoire of Scotland með master í óperuþjálfun. Þar hlaut hún James H. Geddes Repetiteur verðlaunin. Þá hefur hún komið einnig komið að óperuuppsetningum m.a. hjá Íslensku Óperunni, Óperudögum í Kópavogi, British Youth Opera, Clonter Opera, Edinburgh Grand Opera, Lyric Opera Studio í Weimar, Scottish Opera, Royal Academy Opera, og CoOpera Co í London. Matthildur gegnir nú stöðu aðjúnkts í hljóðfæraleik við Listaháskóla Íslands auk þess sem hún er meðleikari við Menntaskólann í tónlist.
Guðný Jónasdóttir sellóleikari útskrifaðist með einleikaragráðu á mastersstigi frá Royal Academy of Music í London árið 2013 eftir að hafa einnig lært við Listaháskóla Íslands og Musikhochschule Lübeck í Þýskalandi. Guðný hefur leikið einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Ungfóníu og nýlega kom hún fram sem einleikari í tvöföldum konserti eftir Johannes Brahms með Eugene Lee og Southbank Sinfonia í St Martin-in-the-Fields. Hún er búsett og starfar sem sellóleikari í Lundúnum. Ásamt því að vera eftirsóttur kammermúsíkant víða um Evrópu hefur hún spilað með hljómsveitum á borð við Fílharmóníusveitina í Lübeck, Sinfóníuhljómsveit Íslands, Southbank Sinfonia, Orchestra of St. Pauls og Royal National Scottish Orchestra.
Tónleikarnir fara fram innan tónleikaraðarinnar Sígildir sunnudagar í Hörpu 2019 – 2020.
08. 09. 2019 Ást og hatur
15. 09. 2019 Alda tríó – Markverðar konur
29. 09. 2019 Kammermúsíkklúbburinn – Trio Nordica, Helga Þóra og Þórunn Ósk
06. 10. 2019 Camerarctica – Mozart aríur og Brahms
20. 10. 2019 Kammermúsíkklúbburinn – Einar, Þórunn Ósk og Anna Guðný
27. 10. 2019 Kammersveit Reykjavíkur – Þrír Frakkar og Schumann
03. 11. 2019 Íslenskar dægurperlur með Ragnheiði Gröndal
10. 11. 2019 Velkomin heim – Sólveig Thoroddsen hörpuleikari
17. 11. 2019 Kammermúsíkklúbburinn – Camerarctica
24. 11. 2019 Sellósónötur – Geirþrúður Anna og Jane Ade
08. 12. 2019 Jólatónleikar Kammersveitar Reykjavíkur
19. 01. 2020 Kammermúsíkklúbburinn – Páll Palomares, Ólöf Sigursveinsdóttir, Bjarni Frímann
26. 01. 2020 Vinsælir sígildir ljóðasöngvar – Kristín R. Sigurðardóttir og Arnhildur Valgarðsdóttir
02. 02. 2020 Barrokkbandið Brák
09. 02. 2020 Stirni Ensemble
16. 02. 2020 Tvíleikur – Hulda Jónsdóttir og Guðrún Dalía Salómonsdóttir
16. 02. 2020 Velkomin heim – Anna Sóley Ásmundsdóttir og ensemble
23. 02. 2020 Svítur og valsar úr austri og vestri
01.03.2020 Cauda Collective: Ástarjátning
08. 03. 2020 Kammermúsíkklúbburinn – Strokkvartettinn Siggi
15. 03. 2020 Kammermúsíkklúbburinn – Weinberg & Shostakovich
22. 03. 2020 Velkomin heim – Björk Níelsdóttir og Matthildur Anna Gísladóttir
29. 03. 2020 Kammersveit Reykjavíkur – Beethoven í 250 ár
13.04.2020 Tríóið Minua á Björtuloftum
19. 04. 2020 Bach og börnin – 100 börn slá hjartans hörpustrengi
03. 05. 2020 Velkomin heim – Þóra Kristín og Desirée Mori
10. 05. 2020 Strengjakvartettar – Ravel, Britten og Beethoven
24. 05. 2020 Barrokkbandið Brák – Franskar aríur og hirðtónlist