Ekkert fannst
Þessi viðburður er liðinn
Tveir Frakkar og Schumann
Efnisskrá: Jacques Ibert (1890-1962): Trois Pièces brèves fyrir blásarakvintett Francis Poulenc (1899-1963): Sextett fyrir flautu, óbó, klarinett, fagott, horn og píanó Hlé Robert Schumann (1810-1856): Kvintett fyrir strengjakvartett og píanó
Kammersveit Reykjavíkur hefur starfsárið 2019–2020 með flutningi á Píanókvintett Schumanns, einu dáðasta kammerverki tónskáldsins. Verkið er stórbrotið í forminu og skartar flóknum kontrapunkti þar sem stef mismunandi kafla bráðna saman í eina heild. Tónmál kvintettsins er víðfemt. Átakamiklir hlutar tónlistarinnar annars vegar í andstæðu við innilegar, þokkafullar laglínur hins vegar magna upp spennu sem á sér engan líka í kammerbókmenntum rómantíska tímabilsins.
Gáskafullur Sextett Poulencs, sem er eitt vinsælasta verkið fyrir blásara og píanó verður einnig á efnisskrá ásamt blásarakvintettinum Trois pièces brèves (Þrjú stutt verk) eftir Ibert.
Í Sextettinum hljómar djassaður galsi sem gæti hafa sprottið upp á kaffihúsum og börum Parísar. Inn á milli eru ómótstæðilegar laglínur sem eru dæmigerðar fyrir Poulenc. Eftirtektarvert er hversu vel hann skrifar fyrir hljóðfærin og hversu mörgum ólíkum litbrigðum hann hann nær að töfra fram með þessari hljóðfærasamsetningu.
Tónleikarnir fara fram innan tónleikaraðarinnar Sígildir sunnudagar í Hörpu 2019 – 2020.
08. 09. 2019 Ást og hatur
15. 09. 2019 Alda tríó – Markverðar konur
29. 09. 2019 Kammermúsíkklúbburinn – Trio Nordica, Helga Þóra og Þórunn Ósk
06. 10. 2019 Camerarctica – Mozart aríur og Brahms
20. 10. 2019 Kammermúsíkklúbburinn – Einar, Þórunn Ósk og Anna Guðný
27. 10. 2019 Kammersveit Reykjavíkur – Þrír Frakkar og Schumann
03. 11. 2019 Íslenskar dægurperlur með Ragnheiði Gröndal
10. 11. 2019 Velkomin heim – Sólveig Thoroddsen hörpuleikari
17. 11. 2019 Kammermúsíkklúbburinn – Camerarctica
24. 11. 2019 Sellósónötur – Geirþrúður Anna og Jane Ade
08. 12. 2019 Jólatónleikar Kammersveitar Reykjavíkur
19. 01. 2020 Kammermúsíkklúbburinn – Páll Palomares, Ólöf Sigursveinsdóttir, Bjarni Frímann
26. 01. 2020 Vinsælir sígildir ljóðasöngvar – Kristín R. Sigurðardóttir og Arnhildur Valgarðsdóttir
02. 02. 2020 Barrokkbandið Brák
09. 02. 2020 Stirni Ensemble
16. 02. 2020 Tvíleikur – Hulda Jónsdóttir og Guðrún Dalía Salómonsdóttir
16. 02. 2020 Velkomin heim – Anna Sóley Ásmundsdóttir og ensemble
23. 02. 2020 Svítur og valsar úr austri og vestri
01.03.2020 Cauda Collective: Ástarjátning
08. 03. 2020 Kammermúsíkklúbburinn – Strokkvartettinn Siggi
15. 03. 2020 Kammermúsíkklúbburinn – Weinberg & Shostakovich
22. 03. 2020 Velkomin heim – Björk Níelsdóttir og Matthildur Anna Gísladóttir
29. 03. 2020 Kammersveit Reykjavíkur – Beethoven í 250 ár
13.04.2020 Tríóið Minua á Björtuloftum
19. 04. 2020 Bach og börnin – 100 börn slá hjartans hörpustrengi
03. 05. 2020 Velkomin heim – Þóra Kristín og Desirée Mori
10. 05. 2020 Strengjakvartettar – Ravel, Britten og Beethoven
24. 05. 2020 Barrokkbandið Brák – Franskar aríur og hirðtónlist