Ekkert fannst
Þessi viðburður er liðinn
Tónleikunum hefur verið frestað. Tilkynnt verður um nýjan tónleikadag bráðlega.
Þriðju tónleikar vetrarins hjá Kammermúsíkklúbbnum á Sígildum sunnudögum í Norðurljósum. Þessir tónleikar áttu að vera í október s.l. en var frestað vegna COVID-19.
Efnisskrá L.v. Beethoven: Strengjakvintett í A-dúr op. 47 b „Kreutzer“ (umritun á Kreutzer-sónötunni) J. Brahms: Strengjasextett nr. 1 í B-dúr op. 18
Flytjendur Auður Hafsteinsdóttir, fiðla; Helga Þóra Björgvinsdóttir, fiðla; Þórunn Ósk Marínósdóttir, víóla; Þórarinn Már Baldursson, víóla; Bryndís Halla Gylfadóttir, selló; Sigurgeir Agnarsson, selló
Sígildir sunnudagar 2020 – 2021
Tónleikaskrá 2020 – 2021
1.tónleikar, sunnudaginn 27. sept. 2020 kl. 16:00
Reynaldo Hahn (1874-1947): A Chloris Jacques Ibert (1890-1962): Pièce pour flûte seule Lili Boulanger (1893-1918): Nocturne og Cortège Maurice Ravel (1875-1937): Sónata fyrir fiðlu og selló Maurice Ravel (1875-1937): Deux Mélodies Hébraïques, Kaddisch og L’énigme éternelle Claude Debussy (1862-1918): Syrinx, sónata fyrir selló og píanó Maurice Ravel (1875-1937): Chansons Madécasses, Nahandove, Aoua og Il est doux
Flytjendur: Sigríður Ósk Kristjánsdóttir, mezzosópran; Emilía Rós Sigfúsdóttir, flauta; Auður Hafsteinsdóttir, fiðla; Bryndís Halla Gylfadóttir, selló; Edda Erlendsdóttir, píanó o.fl.
2.tónleikar, laugardaginn 16. janúar 2021 kl. 16:00 (breytt dagsetning v.Covid-19)
Hildigunnur Rúnarsdóttir: Kammeróperan Traversing the Void. Texti eftir Josephine Truman (frumflutningur).
Flytjendur: Hallveig Rúnarsdóttir Truman, sópran og Camerarctica
3.tónleikar, sunnudaginn 17. janúar 2021 kl. 16:00 (breytt dagsetning v.Covid-19)
4.tónleikar, sunnudaginn 21. feb. 2021 kl. 16:00
L.v.Beethoven: Píanótríó Óákv. Píanótríó
Flytjendur: Sigrún Eðvaldsdóttir, fiðla; Bryndís Halla Gylfadóttir, selló; Domenico Codispoti, píanó
5.tónleikar, sunnudaginn 14. mars 2021 kl. 16:00
L.v.Beethoven: Strengjakvartett Íslensk tónskáld: Ný verk fyrir strengjakvartett
Flytjendur: Strokkvartettinn Siggi: Una Sveinbjarnardóttir, fiðla; Helga Þóra Björgvinsdóttir, fiðla; Þórunn Ósk Marinósdóttir, víóla; Sigurður Bjarki Gunnarsson, selló
Birt með fyrirvara um breytingar
Kammermúsíkklúbburinn býður að venju upp á fjölbreytta tónleika, en dagskrá vetrarins og flytjendur verða kynnt síðar. Í Norðurljósum Hörpu fær kammertónlist af ýmsum toga að óma, perlur tónbókmenntanna, í flutningi tónlistarmanna úr fremstu röð.
Kammermúsíkklúbburinn hefur starfað óslitið frá árinu 1957. Markmið aðstandenda klúbbsins hefur frá upphafi verið að veita fremstu hljóðfæraleikurum þjóðarinnar vettvang til þess að flytja það besta og áhugaverðasta úr heimi kammertónlistar. Kammermúsíkklúbburinn byggir tilveru sína á traustum hópi félaga sem greiða árgjald í upphafi starfsársins. Tónleikarnir eru í áskrift fyrir félaga Kammermúsíkklúbbsins en annars öllum opnir. Til að gerast félagi sjá www.kammer.is
Skólafólki býðst afsláttur af miðaverði í miðasölu Hörpu