Ekkert fannst
Þessi viðburður er liðinn
Innan Sígildra sunnudaga verða tónleikar tileinkaðir sígildum dægurperlum þar sem Ragnheiður Gröndal syngur, með liðsinni Tríó Nordica sem skipað er þeim Auði Hafsteinsdóttur, Bryndísi Höllu Gylfadóttur og Monu Kontra, útsetningar Þórðar Magnússonar á íslenskum dægurperlum, bæði gömlum og nýlegum. Á meðal ástsælla sönglaga sem hljóma má nefna Sveitin milli sanda, Ó borg mín borg og Vegir liggja til allra átta í bland við glænýjar útsetningar á sönglögum Karls O Runólfssonar og Sigvalda Kaldalóns svo sem Í fjarlægð og Draumalandið.
Ragnheiður Gröndal hefur verið virkur þátttandi í íslensku tónlistarlífi um langt skeið. Hún hefur gefið út níu plötur í eigin nafni, bæði með eigin tónlist, íslenskum þjóðlögum og dægurlögum eftir ýmsa höfunda auk þess að hafa hljóðritað umtalsvert af efni fyrir börn. Ragnheiður er handhafi Íslensku tónlistarverðlaunanna, hlaut m.a. verðlaun sem söngkona ársins og fyrir plötu ársins árið 2004. Í mars 2019 kom út diskurinn Töfrabörn sem inniheldur tónlist Ragnheiðar og á síðasta ári samdi hún tónlist fyrir barnabók Bergrúnar Írisar Sævarsdóttur, Næturdýrin, sem ætlað er að skapa notalegar samverustundir og góðar svefnvenjur fyrir börn.
Trío Nordica var stofnað árið 1993 af þeim Auði Hafsteinsdóttur, Bryndísi Höllu Gylfadóttur og Monu Kontra. Tríóið hefur komið reglulega fram víða, á Íslandi sem og erlendis, og í hvívetna hlotið mikið lof fyrir líflegan og litríkan leik. Trio Nordica hefur fjölda verka á verkefnaskrá sinni. Fyrir utan helstu píanótríó tónbókmenntanna er lögð áhersla á að flytja verk eftir konur, norræn píanótríó og nútímaverk.
Þórður Magnússon hefur þegar getið sér orð sem afburða tónskáld á vettfangi íslenskrar nútímatónlistar auk þess að vera eftirsóttur útsetjari. Þórður hefur hlotið fjölda verðlauna, tilnefninga og styrkja, þar sem hæst ber tilnefninguna árið 2004 fyrir tónskáldaverðlaun Norðurlandaráðs, en það sama ár hlaut hann Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir besta sígilda tónverk ársins fyrir fyrstu sinfoníu sína.
Hér má heyra hljóðbrot frá æfingu
Tónleikarnir fara fram innan tónleikaraðarinnar Sígildir sunnudagar í Hörpu 2019 – 2020.
08. 09. 2019 Ást og hatur
15. 09. 2019 Alda tríó – Markverðar konur
29. 09. 2019 Kammermúsíkklúbburinn – Trio Nordica, Helga Þóra og Þórunn Ósk
06. 10. 2019 Camerarctica – Mozart aríur og Brahms
20. 10. 2019 Kammermúsíkklúbburinn – Einar, Þórunn Ósk og Anna Guðný
27. 10. 2019 Kammersveit Reykjavíkur – Þrír Frakkar og Schumann
03. 11. 2019 Íslenskar dægurperlur með Ragnheiði Gröndal
10. 11. 2019 Velkomin heim – Sólveig Thoroddsen hörpuleikari
17. 11. 2019 Kammermúsíkklúbburinn – Camerarctica
24. 11. 2019 Sellósónötur – Geirþrúður Anna og Jane Ade
08. 12. 2019 Jólatónleikar Kammersveitar Reykjavíkur
19. 01. 2020 Kammermúsíkklúbburinn – Páll Palomares, Ólöf Sigursveinsdóttir, Bjarni Frímann
26. 01. 2020 Vinsælir sígildir ljóðasöngvar – Kristín R. Sigurðardóttir og Arnhildur Valgarðsdóttir
02. 02. 2020 Barrokkbandið Brák
09. 02. 2020 Stirni Ensemble
16. 02. 2020 Tvíleikur – Hulda Jónsdóttir og Guðrún Dalía Salómonsdóttir
16. 02. 2020 Velkomin heim – Anna Sóley Ásmundsdóttir og ensemble
23. 02. 2020 Svítur og valsar úr austri og vestri
01.03.2020 Cauda Collective: Ástarjátning
08. 03. 2020 Kammermúsíkklúbburinn – Strokkvartettinn Siggi
15. 03. 2020 Kammermúsíkklúbburinn – Weinberg & Shostakovich
22. 03. 2020 Velkomin heim – Björk Níelsdóttir og Matthildur Anna Gísladóttir
29. 03. 2020 Kammersveit Reykjavíkur – Beethoven í 250 ár
13.04.2020 Tríóið Minua á Björtuloftum
19. 04. 2020 Bach og börnin – 100 börn slá hjartans hörpustrengi
03. 05. 2020 Velkomin heim – Þóra Kristín og Desirée Mori
10. 05. 2020 Strengjakvartettar – Ravel, Britten og Beethoven
24. 05. 2020 Barrokkbandið Brák – Franskar aríur og hirðtónlist