Ekkert fannst
Þessi viðburður er liðinn
Tónleikunum hefur verið frestað vegna COVID-19. Tilkynnt verður um nýjan tónleikadag von bráðar.
Kvintettinn Hviða kemur fram á Sígildum sunnudegi í Norðurljósum. Hviða er nýstofnaður blásarakvintett sem er starfandi í Reykjavík. Meðlimir kvintettsins kynntust við störf í Sinfóníuhljómsveit Íslands og önnur samspilsstörf.
Fyrstu tónleikar kvintettsins fóru fram í Eldborg í apríl síðastliðnum sem hluti af tónleikaröðinni Heima í Hörpu.
Á efnisskrá Hviðu á Sígildum sunnudögum verða flutt verk eftir Carl Nielsen, Irving Fine og Samuel Barber.
Hviðu skipa: Julia Hantschel, óbó Björg Brjánsdóttir, flauta Finn Schofield, klarinett Bryndís Þórsdóttir, fagott Frank Hammarin, horn
Sígildir sunnudagar 2020 – 2021