Ekkert fannst
EFNISSKRÁ Richard Strauss Sextett úr óperunni Capriccio Anna Þorvaldsdóttir Ró Richard Strauss Tod und Verklärung
HLJÓMSVEITARSTJÓRI Stefan Solyom
KVARTETT Strokkvartettinn Siggi
Á þessum föstudagstónleikum hljóma tvö meistaralega samin kammerverk eftir Richard Strauss og Önnu Þorvaldsdóttur, auk hins mikilfenglega tónaljóðs fyrir hljómsveit, Dauði og uppljómun.
Capriccio var síðasta ópera Richards Strauss, samin árið 1941 í miðjum hildarleik heimsstyrjaldarinnar síðari. Yrkisefnið er listin sjálf, nánar tiltekið hvort skipti meira máli í óperusmíði, tónarnir eða textinn. Verkið hefst á yndisfögrum strengjasextett sem hefur öðlast sjálfstætt líf og er ein merkasta kammertónsmíð þessa mikla tónskálds.
Anna Þorvaldsdóttir er í fremstu röð samtímatónskálda á heimsvísu og verk hennar eru fastagestir á efnisskrám helstu hljómsveita heims. Kammerverkið Ró varð til árið 2013 og hefur farið sigurför um heiminn. Gagnrýnandi Gramophone segir verkið búa yfir „óvenju miklu hugarafli“ og tónleikarýnir New York Times kvað það vera „ægifagurt“.
Þessum klukkustundar löngu tónleikum lýkur með stórfenglegri lýsingu Richards Strauss á hugrenningum manns á dauðastundu, þar sem öll litbrigði hljómsveitarinnar eru dregin fram eins og hans var von og vísa.
Nánar um tónleikana á vef hljómsveitarinnar.