Ekkert fannst
Þessi viðburður er liðinn
Hvað getur taugakerfi venjulegs humars sagt okkur um að rétta úr okkur og um árangur í lífinu? Af hverju vegsömuðu fornir Egyptar hæfileikann til að fylgjast með eins og æðstu guðir? Hvaða skelfilega veg kemst fólk á þegar það fyllist biturð, hroka og hefndarþorsta? Og af hverju ættirðu alltaf að klappa ketti sem þú hittir úti á götu?
Dr. Jordan Peterson er frægur fyrir að sameina þá visku fornra hefða sem mannskepnan hefur hlotið með harðfylgi og nýjustu rannsóknir vísindanna. Hann setur fram tólf gagnlegar og djúpstæðar lífsreglur – reglur sem allir þurfa að þekkja til að lifa og þrífast í nútímanum á öllum sviðum lífsins.