Ekkert fannst
Tónleikarnir með Damon Albarn í Hörpu sem áttu að fara fram 12. júní hafa nú verið færðir til 28. mars 2021 Miðar sem þegar hafa verið keyptir gilda sjálfkrafa áfram á tónleikana 28. mars 2021, nánari upplýsingar veitir miðasala Hörpu á midasala@harpa.is
—-
Söngvarinn, lagahöfundurinn og tónskáldið Damon Albarn flytur nýja verkið sitt The Nearer the Fountain, More Pure the Stream Flows í heild sinni í Eldborg, Hörpu 28. mars 2021.
Damon hefur verið tíður gestur á Íslandi í tæplega þrjá áratugi og hefur á þessum tíma verið innblásinn af náttúru þess og landslagi. Nýja verkið hans er afleiðing af þessari ást hans á Íslandi og mun hann flytja þetta mjög svo persónulega verk með hópi tónlistarmanna og umgjörðin byggir á sérhönnuðu sjónlistaverki. Tónleikarnir eru hans fyrstu á Íslandi í 23 ár.
The Nearer the Fountain, More Pure the Stream Flows var skrifað og samið að fullu á Íslandi. Nafnið er fengið frá ljóðinu Love and Memory eftir John Clare..
Damon Albarn er söngvari, lagahöfundur og tónskáld og einn af stofnmeðlimum Blur, Gorillaz og The Good, The Bad & The Queen.
Sjá mynd af sal hér
Fimm verðsvæði eru í boði: – Úrvalssæti: 14.990 kr. (blátt á mynd) – Verðsvæði 1: 12.990 kr. (rautt á mynd) – Verðsvæði 2: 10.990 kr. (ljósblátt á mynd) – Verðsvæði 3: 9.990 kr. (grænt á mynd) – Verðsvæði 4: 7.990 kr. (gult á mynd)
Umsjón: Sena í samstarfi við Listahátíð í Reykjavík