Ekkert fannst
Stytt útgáfa af meistaraverki Mozarts er frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna.
EFNISSKRÁ Wolfgang Amadeus Mozart Töfraflautan (í styttri gerð)
HLJÓMSVEITARSTJÓRI Bjarni Frímann Bjarnason
EINLEIKARAR Eyrún Unnarsdóttir Pamína Sveinn Dúa Hjörleifsson Tamínó Jóhann Kristinsson Papagenó Harpa Ósk Björnsdóttir Papagena Bryndís Guðjónsdóttir Næturdrottningin
SÖGUMAÐUR Halldóra Geirharðasdóttir
Á þessum fjölskyldutónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands hljómar Töfraflautan eftir Mozart í styttri útgáfu en hún er ein dáðasta ópera sögunnar og sannkallaður ævintýraheimur fyrir unga sem aldna. Prinsinn Tamínó leggur af stað í leiðangur til að bjarga hinni fögru Pamínu, en smám saman kemur í ljós að móðir hennar, Næturdrottningin, sem sendi hann af stað, er ekki öll þar sem hún er séð. Til aðstoðar hefur prinsinn fuglaveiðara að nafni Papagenó. Sá er lítið fyrir háfleygar hugsanir en hann kann vel að meta góðan mat og drykk og vill helst af öllu finna sér sálufélaga. Að lokum fella Tamínó og Pamína hugi saman, en þurfa að leysa erfiðar þrautir áður en þau mega eigast.
Hér er meistaraverk Mozarts flutt í klukkustundarlangri útfærslu fyrir sögumann og fimm einsöngvara, en með hlutverkin fara íslenskir söngvarar af yngri kynslóðinni. Öll hafa þau stundað framhaldsnám erlendis og hlotið frábæra dóma fyrir söng sinn og leik. Sögumaður er Halldóra Geirharðsdóttir sem rekur atburðarásina af sinni alkunnu snilld. Þetta er hugljúf og eftirminnileg ævintýrastund fyrir alla fjölskylduna.
Nánar um tónleikana á vef hljómsveitarinnar.