tónlist, klassík, sinfóníuhljómsveit

Bartók og Beethoven - Sinfóníuhjómsveit Íslands
Verð
3.000 - 9.200 kr
Næsti viðburður
fimmtudagur 9. nóvember - 19:30
Salur
Eldborg
EFNISSKRÁ
Veronique Vaka
Inmost (heimsfrumflutningur)
Béla Bartók
Fiðlukonsert nr. 2
Ludwig van
Beethoven Sinfónía nr. 3
HLJÓMSVEITARSTJÓRI
Eva Ollikainen
EINLEIKARI
Leila Josefowicz
Fiðlukonsert Béla Bartóks er eitt af stórvirkjum 20. aldarinnar fyrir
hljóðfærið. Hann var saminn árið 1938, þegar tónskáldið var niðurbrotið yfir
uppgangi fasismans í Ungverjalandi og þeim þjóðernisofsóknum og ofbeldi sem
honum fylgdu. Hafa margir túlkað verkið sem einskonar hinstu kveðju Bartóks til
ættjarðarinnar en skömmu eftir að hann lauk við konsertinn flúði hann ásamt
konu sinni til Bandaríkjanna og auðnaðist þeim aldrei að snúa aftur heim.
Verkið er þrungið sterkum tilfinningum og uppfullt af vísunum í þjóðlagaarfinn
sem Bartók hafði rannsakað á ferðum sínum um sveitir Ungverjalands í upphafi
tuttugustu aldarinnar.
Hetjuhljómkviða Ludwigs van Beethoven er eitt af tímamótaverkum tónlistarsögunnar. Með henni markaði Beethoven nýja og áður óþekkta braut í skrifum fyrir sinfóníuhljómsveit og gætir áhrifanna enn í dag. Innblásturinn að verkinu mun hafa verið sjálfur Napóleón, en þegar hann krýndi sig keisara dró Beethoven tileinkunnina til baka. Ímynd hetjunnar svífur þó greinilega yfir vötnum í verkinu, full af dirfsku og krafti. Í upphafi tónleikanna hljómar verk Veronique Vöku, Inmost, í fyrsta sinn á tónleikapalli, en verkið er samið fyrir Evu Ollikainen, aðalhljómsveitarstjóra Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
Fiðluleikarinn Leila Josefowicz er á meðal fremstu
fiðluleikara heims og hefur markað sér sérstöðu með flutningi helstu tónverka
20. og 21. aldar, auk þess sem hún tekur virkan þátt í frumsköpun nýrrar
tónlistar með pöntunum og samstarfi við tónskáld úr ýmsum áttum. Josefowicz er
staðarlistamaður hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands starfsárið 2023–24 og kemur
tvisvar fram með sveitinni, auk þess sem hún leikur einleiks tónleika í
föstudagsröðinni í janúar næstkomandi.
Viðburðahaldari
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Miðaverð er sem hér segir:
A
7.800 kr.
B
6.300 kr.
C
4.800 kr.
D
3.000 kr.
X
9.200 kr.
Dagskrá
Eldborg
Eldborg er stærsti salur Hörpu þar sem öll hönnun og útfærsla skapar glæsilega umgjörð. Salurinn tekur allt að 1600 manns í sæti. Í Hörpuhorni, við glerhjúpinn á annarri hæð, er unnt að vera með standandi kaffiveitingar eða móttökur tengdar Eldborg.

Hápunktar í Hörpu