tónlist, jazz, aðventa

Arta Jekabsone kvartett - Múlinn Jazzklúbbur
Verð
3.900 kr
Næsti viðburður
miðvikudagur 31. maí - 20:00
Salur
Björtuloft
Arta Jekabsone, söngur
Edgars Rugajs, gítar
Sigmar Þór Matthíasson, bassi
Magnús Trygvason Eliassen, trommur
Á lokatónleikum vordagskrár Jazzklúbbsins Múlans kemur
fram lettneska jazzsöngkonan Arta Jekabsone ásamt hljómsveit. Arta
Jekabsone hefur hlotið hin ýmsu verðlaun fyrir söng sinn undanfarin
ár en hún býr og starfar í New York þar sem hún kemur reglulega fram. Hún
hefur gefið út nokkrar plötur í eigin nafni og í samstarfi við aðra en
tónsmíðar hennar eru undir áhrifum frá þjóðlagaarfi heimalands hennar
Lettlands. Hljómsveitina skipa auk hennar þeir Edgars Rugajs frá Lettlandi
á gítar, kontrabassaleikarinn Sigmar Þór Matthíasson og trommuleikarinn
Magnús Trygvason Eliassen. Á efnisskrá tónleikanna verður að finna
frumsamið efni eftir Arta Jekabsone í bland við önnur lög.
Viðburðahaldari
Múlinn Jazzklúbbur
Miðaverð er sem hér segir:
A
3.900 kr.
Dagskrá
Björtuloft
Björtuloft eru glæsileg og óvenjuleg umgjörð fyrir veislur, móttökur, einkasamkvæmi og fundi. Salurinn er á tveimur hæðum með stórbrotnu útsýni yfir borgina. Á neðri hæð er fastur bar og útgengi á svalir með útsýni yfir höfnina.

Hápunktar í Hörpu