• sinfologo

Sinfóníuhljómsveit Íslands

Starfsárið hefst í haust með spennandi og fjölbreyttri dagskrá.


  • ISO

Sinfóníuhljómsveit Íslands hélt fyrstu tónleika sína árið 1950 og var í upphafi skipuð 40 manns en telur nú 85 hljóðfæraleikara í fullu starfi. Hljómsveitin heldur um 60 tónleika árlega, m.a. áskriftartónleika, tónleika með nútímatónlist, kvikmyndatónlist, skólatónleika og margt fleira. Margir fremstu tónlistarmenn heims hafa komið fram með hljómsveitinni og má þar m.a. nefna Daniel Barenboim, Anne-Sophie Mutter, Joshua Bell, Hilary Hahn, Mstislav Rostropovich, Radu Lupu, Claudio Arrau og Evelyn Glennie. Vladimir Ashkenazy hefur stjórnað sveitinni reglulega um áratuga skeið og er nú heiðursstjórnandi hennar. Rússneski hljómsveitarstjórinn Gennadíj Rosdestvenskíj er aðalgestastjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands, en ísraelski stjórnandinn Ilan Volkov tekur við starfi aðalstjórnanda haustið 2011.

Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur hljóðritað fjölda geisladiska fyrir erlend útgáfufyrirtæki, m.a. BIS, Chandos og Naxos. Heildarhljóðritun SÍ á sinfóníum Sibeliusar undir stjórn Petris Sakari hefur hlotið mikið lof gagnrýnanda og sama má segja um heildarhljóðritun hennar á hljómsveitarverkum Jóns Leifs. Nú vinnur hljómsveitin að því að hljóðrita tónverk franska tónskáldsins Vincents d'Indy fyrir Chandos-útgáfuna, undir stjórn Rumons Gamba. Fyrsti diskurinn í röðinni var tilnefndur til Grammy-verðlauna árið 2008 fyrir besta hljómsveitarflutning, og sá næsti var valinn einn af bestu diskum mánaðarins hjá tímaritinu Gramophone. Þriðji diskurinn hlaut fimm stjörnur hjá gagnrýnanda BBC Music Magazine. Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur farið í fjölda tónleikaferða um Evrópu og Bandaríkin, og m.a. leikið tvívegis í Carnegie Hall, árið 1996 og aftur árið 2000. Eftir fyrri tónleikana ritaði Alex Ross í New York Times að flutningur SÍ undir stjórn Osmos Vänskä hafi verið „hreint út sagt frábær… einn besti flutningur á verkum Sibeliusar sem ég hef nokkru sinni heyrt.“

Sinfóníuhljómsveit Íslands átti aðsetur í Háskólabíói í hálfa öld, frá 1961 til 2011, en fluttií Hörpu vorið 2011.

  • Sinfóníuhljómsveit Íslands

    Hörpu
    Pósthólf 7052
    127 Reykjavík
  • Sími 545 2500
    Fax 562 4475
    Netfang sinfonia [hjá] sinfonia . is
    www.sinfonia.is
  • Miðasala


 

Language


Fréttabréf Hörpu

Hér getur þú skráð netfangið þitt til að fá sendar fréttir og tilkynningar frá Hörpu.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica