Íslenska óperan setur reglulega upp óperusýningar, þar sem íslenskt tónlistar- og leikhúsfólk er í forgrunni. Meðal sýninga undanfarinna missera má nefna Rigoletto árið 2010, Ástardrykkinn árið 2009 og La traviata árið 2008.
Íslenska óperan var formlega stofnuð undir lok áttunda áratugarins og hefur frá árinu 1982 haft aðsetur sitt í Gamla bíói við Ingólfsstræti. Á hinum rúmu þrjátíu árum sem liðin eru frá stofnun hennar hefur hún sett upp meira en 60 óperusýningar, allt frá hinum klassísku óperum Mozarts og Verdis til glænýrra verka íslenskra samtímatónskálda.
Íslenska óperan leggur áherslu á að nýta sér krafta íslenskra listamanna úr tónlistar- og leikhúsheiminum við sviðssetningu sýninga sinna, en erlendir listamenn hafa jafnframt verið reglulegir þátttakendur. Flestir af fremstu söngvurum Íslands hafa tekið þátt í uppfærslum hennar, og hafa margir þeirra íslensku söngvara sem stigu sín fyrstu skref í óperuheiminum á fjölum Íslensku óperunnar síðar orðið þekktir og eftirsóttir söngvarar í hinum alþjóðlega óperuheimi.
Í haust var Töfraflautan eftir W.A. Mozart sýnd í Eldborg og fékk afbragðs góða dóma frá gagnrýnendum. Í vor verður óperan La Bohéme eftir Puccini sett á svið.
|
LA BOHÈME EFTIR PUCCINI Á FJÖLUM ÓPERUNNAR Í VOR
|
|
|
|
Nánari upplýsingar um íslensku óperuna er að finna á http://www.opera.is/
-
Íslenska óperan
Hörpu
Austurbakki 2
101 Reykjavík
http://www.opera.is/ -
Skrifstofa
Sími: 511 6400
Fax: 552 7384
Netfang: opera (hjá) opera . is -
Miðasala
Sími: 511 4200
Fax: 552 7384
Miðasala: http://midi.is/opera2/
Netfang: midasala (hjá) opera . is



