Söngvakeppni Sjónvarpsins 2012
Úrslitin í Eldborgarsal Hörpu 11. febrúar.
Úrslit Söngvakeppni Sjónvarpsins fara fram í Eldborgarsal Hörpu laugardaginn 11. febrúar og verða jafnframt í beinni útsendingu á RÚV. Kynnir og umsjónarmaður verður Brynja Þorgeirsdóttir og henni til halds og trausts verður greiningardeild Hljómskálans ásamt Sigtryggi Baldurssyni.
Undanúrslitaþættirnir verða á RÚV laugardagana, 14., 21. og 28. janúar. Fimm ný íslensk lög keppa í hverjum þætti og komast tvö þeirra áfram hverju sinni. Sex lög keppa því til úrslita í Eldborg og vinningslagið verður fulltrúi Íslands í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva í maí en keppnin í ár verður haldin í Bakú í Aserbaídsjan.
Unnendum Söngvakeppni Sjónvarpsins gefst kostur á að vera viðstaddir úrslitin í Eldborgarsal Hörpu og hefst forsala aðgöngumiða á Harpa.is og í síma 528 5050 föstudaginn 27. janúar kl. 12.00. Miðaverð er 2.000 kr.
Á vef Söngvakeppninnar er hægt að hlusta á öll lögin, kynna sér keppendur og flytjendur og margt fleira:

